Menntamál - 01.11.1944, Blaðsíða 10
156
MENNTAMÁL
Tíminn líður
/ *
Viðtal við Asgeir Asgeirsson
— Nú eru Menntamál orðin tuttugu ára, hóf ritstjórinn
mál sitt við Ásgeir Ásgeirsson, stofnanda Menntamála.
— Þessu mátti búast
við, svarar Ásgeir. Og ég
sjálfur orðinn fimmtugur.
Iivað tíminn líður!
— Ekki sér það nú mik-
ið á þér eða tímaritinu.
— Alltént þó gleraugun
og gráu hárin. Eða segðu
allar breytingarnar, sem
orðið hafa á ekki lengri
ævi. í mínu ungdæmi . . .
— Þetta segja karlarn-
ir. Og það eru kölluð elli-
mörk.
— Við nútíma menn
verðum fljótt gamlir, ef
aldurinn á að mælast í
breyttum tímum. Við lifum nú á hverjum tíu árum meiri
breytingar en gömlu mennirnir áður á heilum manns-
aldri. Þeir, sem eru fæddir fyrir aldamót, hafa séð tvenna
tímana. Þegar ég var ungur fannst mér tíminn drattast
áfram og ætla aldrei að líða, en nú eru vikurnar og mán-
uðirnir þotnir fram hjá áður en varir.
— Ætli það sé ekki svo fyrir flestum krökkum og körl-
um. Og einhverjir mundu kalla þetta ellimörk.
•— Þáð má vera. Við þekkjum ekki EUi kerlingu, þeg-