Menntamál - 01.11.1944, Qupperneq 13
MENNTAMÁL
159
HELGI ELlASSON:
Vinnukortin hans Péturs G.
Þegar ég dvaldi við nám erlendis á árunum 1926—29
kynntist ég notkun vinnubóka í skólum, og leizt mér svo
á, að þar væri um gott hjálpartæki að ræða. Enda þótt
segja mætti, að hér væri
um nýjung í kennslu að
ræða, þá er mikið til í
því, sem gamall farkennari
sagði við mig um það bil
sex árum síðar, þegar tal-
að var um vinnubókaað-
ferðina sem algert nýmæli
í „kennsluaðferðum", en
hann sagði eitthvað á
þessa leið: „Það er talað
um þessar vinnubækur
eins og einhvern „kínalífs-
elexír“ í kennslumálum,
sem aldrei hafi verið not-
aður fyrr, en ég vil bara
segja það, að ég tel, að
margar „glósu“-bækur, sem gerðar hafa verið hjá mér
og mörgum kennurum í herrans mörg ár, standi ekki að
baki mörgum vinnubókum. Það væri þá helzt til framfara,
að umlínukortin hafa auðveldað starfið og mikið þótti
mér gott að fá kortin hans Péturs G.“
Ég minnist þess, að þegar ég var í barnaskóla í minni
tss sveit fyrir um það bil 30 árum, þá vorum við krakkarnir