Menntamál - 01.11.1944, Blaðsíða 15

Menntamál - 01.11.1944, Blaðsíða 15
MENNTAMÁL 161 Þá sagði Pétur, að hann yrði líklega að loka fjölritunar- stofunni og gefa sig eingöngu að kortaf jölritun!! Þenn- an vetur fjölritaði Pétur G. kort af íslandi, bæði fjórð- ungskort og heilkort, ennfremur ýms landa- og heims- álfukort. Haustið 1930 var kennurum um land allt sent sýnishorn af þessum vinnukortum og leiðbeiningar um notkun þeirra. Einu eða tveimur árum seinna komu svo vinnukort fyrir íslenzka skóla, sem gerð voru í Svíþjóð ásamt ýmiskonar vinnubókarblöðum, og þá hætti Pétur G. kortagerð sinni. Það var ánægjulegt að heimsækja hann Pétur G. í fjöl- ritunarstofu hans, sem þá var á Laugavegi 4, og sjá þá miklu alúð og natni, sem hann lagði fram við kortagerð- ina. Með þessu og ýmsu fleiru sýndi Pétur G., að fjölrit- unaráhöld eru með beztu hjálpartækjum við alla kennslu, enda leið ekki á löngu þar til farið var að kenna nemend- um Kennaraskólans að nota fjölrita (Hektograf). í Menntamálum hefur verið skýrt frá því, hvernig auðvelt er að útbúa handhægan fjölrita. Lítið mun Pétur G. hafa haft upp úr þessari korta- gerð sinni annað en ánægjuna af því að vita, hvernig börnin tóku þeim. Mér fannst koma nýtt líf í kennslu- stundirnar. Börn, sem lítinn áhuga höfðu haft fyrir landa- fræði, urðu svo kappsöm, bæði í skólanum og heima, að mér fannst nóg um. Þess vegna munu eigi allfá börn hafa skotizt inn til Péturs G. og fengið þar kort umfram það, sem skólinn lét þeim í té. Þá er lokið frásögninni um kortin hans Péturs G.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.