Menntamál - 01.11.1944, Side 18
164
MENNTAMÁL
SIGURÐUR THORLACIUS:
Hlutverk Menntamála
Vér lifum á tímum flaums og byltinga. Sorgirnar þung-
ar sem blý hvíla á herðum þjáðu mannkyni, sem sér hilla
í upprof gegnum sprengjuregn og harðstjórnarmyrkur,
og fram undan bjarmar
fyrir nýjum tíma.
Uppeldis- og kennslumál
verða veglegur og áhrifa-
mikill þáttur í uppbygg-
ingu hinnar nýju frelsis-
aldar. íslenzkum kennur-
um og öðrum menntafröm-
uðum ber skylda til að
vera á verði, fylgjast með
og tileinka sér erlendar
nýj ungar og rannsóknir,
sem menningarmálum vor-
um mega að gagni verða.
Og íslendingum ber einnig
að leggja fram sinn skerf
til rannsókna og þekking-
arbóta. Þjóðmenning vor hefur verið sérstæð um margt
frá öndverðu. Hin ytri uppeldis- og menningarskilyrði eru
enn sérkennileg á ýmsa lund og þekking vor á uppruna
þjóðar og ætterni einstaklinga heilsteyptari en dæmi
munu til annars staðar. Allt þetta ætti að veita íslenzkum
fræðimönnum, sem fengjust við mannfræði, félagsfræði-
og uppeldisfræðilegar rannsóknir, aðstöðu til athugana,
sem gætu haft alþjóðlegt gildi.
Hlutverk Menntamála, tímarits kennara, í sambandi við