Menntamál - 01.11.1944, Side 20

Menntamál - 01.11.1944, Side 20
166 MENNTAMÁL fræðslu og eflingu siðgæðis. Allt var þetta svo algengt og hversdagslegt, að lesandinn veitti því naumast athygli. Eitt svar stakk þó í stúf við hin öll. Það var aðeins tvær línur, undirritað Bernhard Shaw, og hljóðaði svo: „Stjórnar- völdin eru vanmáttug að gera nokkrar verulegar umbætur undir núverandi þjóðskipulagi.“ Nokkur ár eru liðin, en svar hins gamla gráskeggs og heimsfræga skálds hefur vakað í vitund minni og beint huganum að baráttu þjóðar minnar fyrir menntun sinna uppvaxandi kynslóða. I raun og sannleika hafa skóla- og uppeldismál íslenzku þjóðarinnar aldrei verið hugsuð nema frá degi til dags og eru það ekki enn. Allt, sem okkur hefur hlotnazt á þessu sviði, frá þeim dögum er Jón Sigurðsson reit skólamálatillögurnar 1842, hefur komizt í framkvæmd fyrir þungan áróður, ómótstæðilega þörf, fórnfýsi og harðfylgi einstakra brautryðjenda. En ég hygg, að óvíða í stjórnmálasögunni eftir 1874 sé hægt að benda á, að frumkvæðið að framförum í þessum mál- um hafi verið hjá forráðamönnum stjórnmálanna. Þeir hafa hverju sinni orðið að láta undan af illri nauðsyn. Það er hvorki af víðsýni né skilningi valdhafanna á fræðslu- og uppeldismálum, að við höfum fengið skóla og fræðslulög, kennslubækur og áhöld nokkur. Hver, sem véfengir þessa fullyrðingu, geri svo vel og fletti upp í þingskjölum, stjórnartíðindum, fundagerðum skóla- nefnda, hreppsnefnda og bæjarstjórna. Slík mál hafa ekki tendrað ljós á altari pólitískra flokka. Við höfum háð okkar þræíastrið, einnig á þessum vettvangi, — okkar frelsisstríð. Við höfum háð reipdrátt við rammt aftur- hald, innlent og erlent, sem illa þoldi sólina. En við erum að draga reipið úr höndum þess, við erum að sigra í okkar frelsisstríði. Við höfum oft þumbazt fet fyrir fet, stundum fyrir ofurkapp einstaklinga, aðra stundina í blindri samkeppni um þau hnoss, sem ættu að vera sam- eiginleg eign allra einstaklinga lítillar þjóðar. Árangur-

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.