Menntamál - 01.11.1944, Síða 23
MENNTAMÁL
169
JÓNAS MAGNÚSSON:
Vandamál æskunnar
(Jónas Magnússon liefur ver-
ið skólastjóri barnaskólans á
Patfeksfirði s. 1. 25 ár eða síð-
an 1919, en kennarapróf tók
hann 1914 (f. 1891). Hann
hefur jafnan verið virkur starfs-
maður í félagsskap kennara og
löngum fulltrúi félags síns á
þingum S. í. 15. Opinber mál
hefur liann látið allmjög til
sín taka og gegnt ýmsum trún-
aðarstörfum á þeim vettvangi.
Jónas er maður vakandi í
starfi sínu og áhugasamur um
allt, er að gagni má koma í
uppeldismálnm þjóðarinnar.)
Fátt tekur okkur kennara sárar en að sjá einhverja
af nemendum okkar leiðast á ýmsa vegu afvega, þegar
þeir eru sloppnir út úr barnaskólunum. Sá hluti þeirra,
sem fer í framhaldsskóla, er of lítill. Fyrir mörgum þeirra
er eins og stífla sé tekin úr elfi, þegar barnaskólanám-
inu lýkur. Allar hömlur verða lausar og þessi ótamda
orka æskulýðsins leitar sér útrásar og setur sér þá oft
og tíðum engin takmörk. Fyrr en varir eru allt of margir
komnir á ýmsa glapstigu, ssm ekki er auðvelt að sveigja
af, og þarf oftast miklu meiri skapfestu til að snúa við
en þurft hefði til að forðast villigöturnar, ef styrk hönd