Menntamál - 01.11.1944, Side 24

Menntamál - 01.11.1944, Side 24
170 MENNTAMÁL og leiðandi hefði þá verið til leiðbeiningar og liðveizlu góðra áforma. Ég fagna því, að vonir standa nú til þess, að úr þessu verði bætt að nokkru með skyldu til framhaldsnáms, þótt ekki verði nema um eins árs skeið. Það hefur sjálfsagt verið óhjákvæmilegt að færa skólaskyldualdurinn niður í 7 ára aldursmark. En hefur ekki ábyrgð heimilanna og umhyggju þeirra fyrir andlegu uppeldi barnanna verið með því of mjög í burtu kippt? Og ég verð að fullyrða, að þörfin á að færa skólaskylduna upp hafi verið enn rík- ari, enda nú orðin svo skýlaus, að ekki þykir unnt að láta við sama standa lengur í því efni. En það var ekki ætl- unin með línum þessum, að rökræða þetta efni. Ég hef aldrei getað — og get ekki enn — tekið undir þann dóm um æskulýð okkar, að hann fari versnandi, og að æska okkar nú sé öll önnur og verri en þegar við vor- um ung, sem komin eru til nokkurs aldurs. Þeir skipta nú orðið hundruðum, nemendurnir, sem ég hef kvatt út úr barnaskóla, og að örfáum undanteknum hafa þeir allir verið beztu mannsefni. Því sárara er að vita nokkur dæmi, þar sem verr hefur farið en vonir stóðu til. Aldrei hefur íslenzkur æskulýður lifað slílta umbrota- tíma sem nú. Þess vegna er honum líka meiri vorkunn. Allir láta sem þeir vilji mikið gera fyrir æskuna. Það er jafnvel talað um að reisa höll henni til handa í höfuð- stað landsins. Ekki skal það lastað. En þótt slík höll rísi af grunni, verður hún aldrei nema umbúðir um eitthvað annað og meira, sem verður að fylgja. Annars verður því fé, sem til hennar er varið, kastað á glæ. Það sem æskuna skortir mest, að mínum dómi, er góð- ur og hollur félagsskapur við hennar hæfi. Félagsskapur, þar sem ungmennin fá að beita sér við eitthvað, sem þroskar þau til sálar og líkama. Barna- og unglinga- stúkurnar hafa unnið á þessu sviði þarft og gott verk með sinni starfsemi, að ógleymdum ungmennafélögum

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.