Menntamál - 01.05.1951, Page 10
56
MENNTAMÁL
Börnum fjölgar ört í Svíþjóð, og er því þegar mikil
vöntun á skólahúsum og kennurum. Verið er að stofna
nýja kennaraskóla, og er búizt við því, að innan fárra ára
verði kennaraþörfinni fullnægt. Hins vegar mun ganga
erfiðlegar um lausn húsnæðismálanna. Er talið, að næstu
5 árin þyrfti að byggja skóla fyrir 1 milljarð kr. á ári, en
árið 1950 var veitt skólabyggingarleyfi fyrir 70 millj. kr.
Ekki hefur verið leyft að byggja fimleikahús um nokk-
urra ára skeið, en ötullega er barizt fyrir að fá því banni
aflétt.
í Svíþjóð eru um 2500 sveitarfélög, og eru sum þeirra
fámenn. Talið er, að vart fáist viðunandi skipan skóla-
málanna í dreifbýlinu, fyrr en litlu sveitarfélögin hafa
verið sameinuð til muna.
Þá skýrði ræðumaður frá stjórn skólamálanna, frá yfir-
stjórn til stjórnar einstakra skóla. Taldi hann, að mikils
væri um það vert, að þeir aðilar, sem á einn og annan hátt
ynnu að stjórn og skipan skóla- og uppeldismálanna gerðu
það vel, en þó skipti mestu máli, að sjálf skóla- og uppeldis-
störfin væru vel og farsællega af hendi leyst og í þeim efn-
um ylti mest á kennurum og heimilum. Fræðslumálastjórn-
in sænska beitir sér nú mjög fyrir athugunum og tilraun-
um á þessu sviði. M. a. er — og hefur verið — athugað,
að hve miklu leyti útvarpskennsla, kvikmyndir og náms-
flokkar geta orðið fræðslumálunum að liði.
Unnið er að hóflegri samræmingu í skólunum um náms-
efni og prófkröfur, og eru ýmiss konar prófverkefni notuð
við það.
Fundarmenn fengu — að erindinu loknu — ýmis plögg
til skýringar máli ræðumanns.
Að loknum þessum erindum urðu talsverðar umræður.
Skýrðist margt, sem var fundarmönnum áður óljóst. Eink-
um skildist þeim betur en áður, hversu svipaða erfiðleika er
við að etja í öllum löndunum, og að stefnt er í sömu átt í