Menntamál - 01.05.1951, Blaðsíða 18

Menntamál - 01.05.1951, Blaðsíða 18
64 MENNTAMÁL Frá kennurum og nemöndum II. SVANLAUG ERMENREKSDÓTTIR: Jákvæð samskipti nemenda og kennara. i. 1. „Aldrei gleymi ég, hve vel þú skildir okkur nemerid- ur þína og hve okkur fannst, að þér þætti vænt um okkur. Við launuðum þér það líka með hlýju og góðum áhuga a. m. k...Ég þakka kennurunum mínum fyrir þessi indælu skólaár". Nr. 7. 2. „Mér finnst kennarinn eiga fullkomið þakklæti mitt og viðurkenningu skilið fyrir, hvað hann leggur sig vel fram um að fræða mig .. . þegar ég var í barnaskóla, kenndi mér aðeins einn kennari. Mér þótti ákaflega vænt um hann .. . mér fannst hann vera að kenna mér af ást og umhyggju fyrir því, að ég fengi að vita sem allra mest. . . í fáum orð- um sagt held ég, að ég hafi virt hann fyrir þekkinguna, verið þakklátur honum fyrir, hvað hann lagði sig fram um að kenna mér og þótt vænt um hann fyrir, hvað hann var góður við mig.“ Nr. 6. 3. „Það, sem ég tel, að kennari minn hafi gert mér mest gott, er, að hann skapaði hjá mér áhuga fyrir náminu, þörf fyrir að fræðast og menntast og virðingu fyrir kennaran- um, sem þó var ekki einskorðuð við hann, heldur beindist einnig að mönnum og málefnum, sem um var fjallað, til- verunni og sjálfri mér .... Góður hugur minn til kennarans

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.