Menntamál - 01.05.1951, Blaðsíða 34
80
MENNTAMÁL
til fyrirmyndar um frágang allan. Má vera, að efnahag-
ur Svía og aðstæður hin síðari ár ráði þar nokkru. Mest
sá ég 9 saumavélar í sænskri handavinnustofu, sem ætluð
var 20 nemendum. Hins vegar eru ákvæði um það í öllum
þessum löndum, að ekki megi vera fleiri en fjórir nemendur
um saumavél. — Ég tel ekki ástæðu til að fara hér út í
að lýsa handavinnusal, töflum, strauútbúnaði, geymslum
og öðru þess háttar. Þó vil ég aðeins minnast á ljósaútbún-
aðinn. Lýsing í nýjustu handavinnustofum stúlkna í Sví-
þjóð var á þann veg, að loftin voru máluð ljós. Perurnar
báru mikla birtu, að neðan voru þær skyggðar með hjálmi,
en að ofan voru ljósin óvarin. Þetta er gert til að láta loft-
ið endurkasta ljósinu, og fá þannig jafna birtu um stofuna.
Kennslukonur létu verr af þessari lýsingu en þeirri, er
tíðkaðist þar á undan, þ. e. að hafa hreyfanlega lampa
yfir vinnuborðinu, þannig að tveir eða fjórir nemendur
væru saman um eitt ljós.
Hússtjórn. Hússtjórn eða skólaeldhúskennsla er bæði
bókleg og verkleg, er venja að einum fimmta til eins þriðja
hluta námstímans sé varið til bóklegrar fræðslu.
f bóklegu kennslunni er kennt reikningshald og um kostn-
að við matargerð, reiknað efni í matinn og hitagjafi. Kennt
er um ýmis eldunartæki, efnisfræði fæðutegundanna, nær-
ingarefnafræði og heilsufræði. Kennt er um þvottaefni,
eiginleika vatns og sitthvað, er lýtur að þvottum og öðru
hreinlæti í heimahúsum. I Svíþjóð er auk þess kennt um
val húsgagna og frágang á heimilum, lýsingu og upphitun
húsa. Og í Svíþjóð, en þó einkum í Noregi er kennt um fæðu
og hirðingu ungbarna, um lifnaðarhætti og matarræði
barnshafandi kvenna. Þetta var bóklega kennslan. En verk-
lega kennslan er aðallega fólgin í matargerð, bökun, að bera
á borð og þjóna við það, þvotti, að strjúka lín, pressun,
uppþvotti, gólf- og borðþvotti, að hreinsa glugga,
þurrka af húsgögnum, búa um rúm og hirða smábörn.
Tilhögun kennslunnar er sú, að einni eða tveimur