Menntamál - 01.05.1951, Qupperneq 27

Menntamál - 01.05.1951, Qupperneq 27
menntamál 73 frá söguöld. Þar eru teiknaðir fánar margra þjóða í Evrópu og þjóð- söngvar þcirra skrifaðir. Þar eru í línuriti aldirnar: Landnámsöld, söguöld, Sturlungaöld o. fl., og færðir inn hel/.tu atburðir ltverrar aldar eftir ártölum. Fjölda margt fleira lét hann okkur færa inn í þessar bækur, og ég cr ekki í nokkrum vafa um, að sá fróðleikur hefur setið fastar í okkur, heldur en hefði orðið við lestur og yfirheyrslur einar saman.“ Nr. 1. Fleiri dæmi verða ekki tekin úr ritgerðunum né fjallað um aðra kosti kennara, þótt mörgum hafi verið sleppt, sem skipta þó miklu máli. Að lokum vil ég benda á það samræmi, sem er með mati nemenda á kostum kennara, og ákvörðun löggjafarvalds- ins á hlutverki barnaskóla. Hún er sett fram í 1. gr. í 1. kafla fræðslulaganna nr. 34, útg. 29. apríl 1946 og hljóðar svo: „Barnaskólar skulu leitast við að haga störfum í sem fyllstu samræmi við eðli og þarfir nemenda sinna, hjálpa þeim að öðlast heilbrigð lífsviðhorf og hollar lífsvenjur, vera á verði um líkamshreysti þeirra og veita þeim tilsögn í lögskipuðum námsgreinum, hverjum eftir sínum þroska.“ Ryggingarnefnd Kennaraskólans. Nýlega skipaði menntamálaráðherra byggingarnefnd Kennara- skólans. Þessir menn eiga sæti i nefndinni: Freysteinn Gunnarsson skólastjóri, formaður, Helgi Elíasson fræðslumálastjóri, Einar Erlends- son liúsameistari, Pálmi Jósefsson skólastjóri, tilnefndur af SIB, og Guðjón Jónsson kcnnari, tilnefndur af Nemendasambandi Kennara- skólans. Upyeldismálaþing verður haldið í Reykjavík nú í vor. Hefst það 13. júní. Gangast samtök kennara við barnaskóla og framhaldsskóla fyrir þinghaldinu. Aðalmál, sem um verður fjallað, eru unglingafræðslan og samband hennar við barnaskóla- og gagnfræðanám og enn fremur kennara- ’nenntunin.

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.