Menntamál - 01.05.1951, Qupperneq 32

Menntamál - 01.05.1951, Qupperneq 32
78 MENNTAMÁL til að ljúka æfingunum. Fyrsta æfingin er mjög einföld og létt. Hver ný æfing felur síðan í sér litlu þyngri viðfangs- efni, og meðferð nýrra áhalda bætist þannig smásaman við. Æfingarnar eru 27, en munirnir eru 133. Það er því um marga muni að velja úr sömu æfingu. Nemendur þurfa því ekki allir að smíða sams konar hlut samtímis, þótt þeir séu allir að læra sömu smíðaæfinguna. Þarna er því hægt að beita hópkennslu, þótt nemendur séu með sinn hvern hlutinn. Annars er hópkennslu lítið beitt í sænskri handavinnukennslu, mest einstaklingskennslu. — Eftir sænska kerfinu eru handavinnusalir ætlaðir 18 nemendum, en helzt ekki hafðir fleiri en 15 í tíma. Það er miðað við, að bekkjum sé tvískipt. Norslca kerfið. 1889 var smíðakennsla gerð að skyldu- námsgrein í norskum skólum. Höfundur norska kerfisins var Hans Konrad Kjernerud. Hefur hann lært bæði af 0. Salomon og Axel Mikkelsen. — í kerfi Kjerneruds er jöfnum höndum lögð áherzla á að þjálfa meðferð áhalda, og að kenna ýmis atriði smíðanna. Munaval og kennsluröð- un er mótuð af sænska kerfinu, en kennslan í meðferð áhalda er líkari danska kerfinu. Kerfi Kjerneruds hefur nú frá því upp úr 1940 þokað fyrir hugmyndum sænska arkitektsins Malmstens. Handa- vinnan í norskum barnaskólum er nú æði frjáls, nemendur kjósa sjálfir, hvaða hluti þeir smíða, og í samráði við kenn- arann ákveða þeir, hvaða smíði skuli vera á hverjum hlut, og einnig stærð hlutanna, form og hlutföll. Ætlazt er til, að nemendur noti vinnubók, og í framkvæmdinni er svo víða, en ekki alls staðar. 1 framhaldsskólunum heldur kerfi Kjerneruds að mörgu leyti velli ennþá. Þar er nemendum kennt að fara með áhöldin, kennt að hvetja og búa áhöldin í hendur sér. Hin ýmsu atriði í smíðunum eru þar skýrð og kennd. Nemendur læra vinnuteikningu og skulu læra að vinna eftir teikn- ingum. — I öllum þessum löndum er drengjum kennt að

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.