Menntamál - 01.12.1953, Blaðsíða 20
142
MENNTAMÁL
komulag hans að sjálfsögðu byggt á áliti nefndarinnar,
sem skipuð var skólagengnum mönnum. Á þessum fundi
er Jóhannes Halldórsson ráðinn forstöðumaður skólans
og einkakennari. Er það þá tilskilið frá hans hendi, að
hentugt húsnæði fáist, og mun það hafa tekizt, því að víst
er, að skólinn hóf starf sitt í október 1871, þótt ekki sé
vitað hvaða dag, en líklega hefur það varla verið fyrir
23 okt., því að þann dag ákveður bæjarstjórn kennslu-
gjald, er vera skyldi 1 dalur á mánuði með barni efnaðra
manna, en 48 skildingar með hverju barni hinna fátæk-
ari bæjarbúa. Mun varla líklegt að skólinn hafi tekið til
starfa fyrr en kennslugjaldið var ákveðið.
Má því örugglega fullyrða, að barnaskóli á Akureyri sé
stofnaður í október 1871, en ekki 1870 eins og Kl. Jónsson
telur í sögu Akureyrar, þótt tillögur um það kæmu fram
bæði 1865 og 1870. . . . Blaðið Norðanfari birtir grein um
barnaskólann á Akureyri í ársbyrjun 1876. Ræðir það
fyrst um nauðsyn þess að hafa komið skóla á stofn. Of
fá börn hafi getað notfært sér kennslu Jóhannesar Hall-
dórssonar vegna kostnaðar, og því hafi opinber skóli verið
nauðsyn. Þakkar blaðið mjög Jóni Jóhnsen bæjarfógeta
það, að skólinn var stofnaður, og getur þess, að fyrstu
2 árin hafi aðeins 20 börn sótt skólann hvort árið, en
það sé ekki meira en svo sem helmingur þeirra barna, sem
þurft hefðu að nota hann. En þetta ár séu börnin 30 í
skóla, og starfi nú Tómas Davíðsson einnig við skólann
ásamt Jóhannesi Halldórssyni. Skólinn byrji nú um miðj-
an október og standi til aprílloka. Kennt er 5 stundir á
dag, frá kl. 9^2 til kl. 2*4, og hefjist skólinn hvern dag
með söng og bæn. Þá getur blaðið þess, að inntökuskilyrði
í skólann sé það, að barnið sé „nokkurn veginn bænabókar-
fært til lesturs“, en út af því þurfi stundum að bregða,
svo að sem flest börn geti notið skólans. Námsgreinar séu:
Kver, biblíusögur, landafræði, saga, danska, ísl. málfræði,
réttritun, skrift, reikningur og söngur.