Vorið - 01.03.1934, Qupperneq 8
24
Hlálegur reiðhestur.
að læra, og álitu það langt fyrir
neðan virðingu sína að fara að
vinna erfiðisvinnu. En þá tók
Booker sjálfur haka og skóflu
og gekk á hverjum morgni fyrst-
ur til vinnu út á mörkina, en þeg-
ar strákarnir sáu það kom annað
hljóð í strokkinn, og ekki leið á
löngu áður en þeir voru búnir að
rækta allstórt landssvæði.
Framh.
-----0-----
REIKNINGSÞRAUT.
Maður nokkur borgaði 30 krónur í
tveggja krónu peningum, krónupening-
um og tíeyringum. Alls voru pening-
arnir 30. — Hvað voru margir pening-
ar af hverri tegund?
LOKIÐ VELTUR.
Þessi leikur er iðkaður inni, og er
þannig: Leikendur setjast í hvirfingu
flötum beinum á gólfið. Síðan færðu
þér potthlemm frammi í eldhúsi, sem
síðan er látinn velta innan í hringn-
um. En áður en þú veltir lokinu af
stað, eða um leið, átt þú að kalla upp
nafn einhvers í hringnum, og á hann
þá að reyna að ná í lokið áður en
það fellur. Ef honum tekst það ekki,
verður hann að láta af hendi einhvern
hlut (pant), og þannig gengur það
koll af kolli.
Ráðningar á þrautum í síðasta blaði:
Felumyndin: Snúið blaðinu til vinstri
svo að hliðin viti upp, sést þá malarinn
hjá veginum hægra megin.
EIdspýtnaþraut: Ráðningin er:
7 I U
Peningakassinn: Seglskipið nær kass-
anum með línu nr. 3.
UNGU LESENDUR!
Sendið »Vorinu« örstuttar greinar,
sögur, ferðasögur, kýmnissögur, þraut-
ir, vísur, o. s. frv., allt frumsamið.
Mun það þá verða birt smátt og smátt.
Kærar þakkir fyrir öll bréfin. Því mið-
ur get eg ekki svarað þeim öllum, en
vænt þykir mér um þau samt.
Ritstjórinn.
Takið eftir!
Hver sem útvegar 5 nýja kaup-
endur að „Vorinu" faer það sjálf-
ur ókeypis þetta ár, og áfram,
ef hann hefir útsölu og inn-
heimtu á hendí.
Prentsm. Odds Björnssonar.