Vorið - 01.06.1948, Blaðsíða 20

Vorið - 01.06.1948, Blaðsíða 20
58 VO RIÐ vera, að sonur yðar spretti hér upp úr hrauninu á þeim tíma, ha, ha, ha! ODDUR: Sveinn! Tilkynntu kall- aranum, að ég hafi fengið 15 mín- útna frest. (Sveinninn fer.) ODDUR: Hvaða reykur gýs þarna upp með Ármannsfelli? Það er líkast því, að það sé jóreykur. HERLEGDÁÐ: Er þetta ekki þokuhnoðri? HELGA: Mér finnst einhver hreyf- ing vera þarna. (Sveinninn kemur.) ODDUR (snýr sér að honum): Sérðu, hvaða reykur er upp við Ármannsfell? Þú hefur svo góða sjón. SVEINNINN: Þarna er einhver á ferð. Þetta er jóreykur. HERLEGDÁÐ (órólegur): Nú held ég, að þið séuð farin að sjá ofsjónir. Ekkert get ég séð. ODDUR: Þetta er ríðandi maður. Ef von væri Árna sonar míns hér á landi, segði ég, að hann væri þarna á ferð. HERLEGDÁÐ (órólegur): Nú þykir mér, að þið vera orðin bjartsýn. SVEINNINN: Þessi maður fer geyst yfir. Hann nálgast óðum. (Þau horfa öll í sömu átt.) HELGA: Aumingja hesturinn! Sjá- ið, hvernig gufustrókur stend- ur fram úr nösunum á honum. á ODDUR: Já, þetta er einhver, sem liggur mikið á. Hann linar aldrei á sprettinum. HERLEGDÁÐ: Þetta er auðvitað einhver smalastrákur hér úr ná- grenninu. ODDUR: Ekki trúi ég því. Mér finnst ég þekkja hreyfingarnar. HELGA: Skyldi það þá vera bless- aður drengurinn minn? KALLARINN: Árni Oddsson, Árni Oddsson, Árni Oddsson! ÁRNI (snarast inn); Já, já, já! Hér er Árni Oddsson kominn fyrir guðs náð, en ekki þína, Herleg- dáð. (Árni faðmar foreldra sína. Herlegdáð fer.) ODDUR: Guði sé lof, að þú ert kominn! HELGA: Loksins komstu, dreng- urinn minn! (Klappar honum.) ÁRNI (við föður sinn): Geta svein- ar þínir ekki hirt um Brún? Hon- um á ég það að þakka, að ég er hingað kominn. ODDUR (við sveininn): Bið þú hestasveina mína að hirða um hestinn. (Hann fer.) ÁRNI: Við skulum ganga strax til lögréttu, faðir minn. (Þeir leið- ast út.) Tjaldið fellur örstutta stund.

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.