Vorið - 01.06.1948, Blaðsíða 28

Vorið - 01.06.1948, Blaðsíða 28
66 V O R I Ð skipað að setja hann í fangelsi. Já, vissulega. Og litla dúfan flaug nið- ur að ánni, þangað sem fangelsið var. Hún flaug allt í kringum það og kurraði í gegnum grindurnar á hverjum glugga. Loksins sá hún vin sinn. Gamli maðurinn leit upp. „Hefur þú fundið mig, litla vina?“ sagði hann og brosti til dúf- unnar. Hann andvarpaði. „Hvað munu hinir vinir mínir gera, þeir, sem geta ekki flogið að glugganum mínum, eins og þú?“ Litla dúfan tróð sér inn á milli tveggja rimla, þar sem aðeins hún, sem var svo smá, gat komizt í gegn. Hún flaug til Valetins og lét eina af unaðsfögru fjöðrunum sínum falla í hönd hans. „Þetta er vinargjöf þín til mín,“ sagði biskupinn, þegar hann leit á fjöðrina, sem var öll brún og græn, gyllt og purpuralituð. Þá flaug litla dúfan til múrveggsins, þar sem fjól- urnar spruttu. Hún sleit lítið, grænt lauf og færði Valetin. Biskup- inn brosti blíðlega og grét hátt af gleði, vegna þess, sem honum datt í hug. Þú veizt að blöð fjólunnar eru eins og lítil, græn hjörtu. Hann tók laufið, sem dúfan hafði fært honum og stakk fjöðrinni í gegn- um um það. Á laufið skrifaði hann orðin: „Ég elska þig.“ Hann fékk dúfunni það og sagði henni að fara með það til máttlausu stúlkunnar, Veiku prinsessunnar og allra vina. En hvað þeir urðu nú glaðir að fá þetta vináttumerki, og hvað litla dúfan var hamingjusöm, því að þrátt fyrir það, gat hún þó unnið fyrir aðra. Það var þá einnig eitt- hvað, sem hinir minnstu gátu gert. Nokkru seinna veiktist grimmi konungurinn og dó, og Valetin var leystur úr fangelsinu. En daglega sendi hann litlu dúfuna með kveðju til vina sinna. Þegar Valetin biskup góði dó, sögðu menn: „Við skulum ætíð minnast hans, með því að senda vinum okkar á afmælisdegi hans tákn um vináttu." Og enn í dag er fæðingardagur Valetins haldinn há- tíðlegur og senda menn þá ástar- kveðjur til vina sinna. Árni M. Rögnvaldsson þýddi. „Gjörið svo vel, herra úrsmiður, hérna kemur hengillinn úr klukkunni minni. Hann vill ekki ganga.“ „Já, en hvar er klukkan?“ „Klukkan! Það gengur ekkert að henni, það er bara hengillinn, sem ekki vill ganga.“

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.