Vorið - 01.06.1948, Síða 35
VO RIÐ
73
Mynd þessi er tckin úr vinnubók tólf ára drengs og á að sýna áhrif eiturnautna á
afrek í íþróttum.
— Það skaltu gera, ef þú þorir.
Ef þú gerir það, þá drep ég þig,“
svaraði bróðirinn.
Mamadu hugsaði sig um nokk-
ui'n tíma, en einn morgun, áður en
brÖðirinn var kominn á fætur farg-
aði hann öllum köttunum. Svo
gekk hann inn til bróður síns, stað-
naemdist fyrir frarnan hann og
sagði:
— Nú hef ég drepið kettina þína!
Nú getur þú drepið mig!
Móðirin varð að ganga á milli,
svo að bróðirinn gerði ekki alvöru
ur ógnun sinni. Þessi saga er ofur-
lítill vottur um það, að í Afríku eru
menn ekki eins hræddir við að sjá
blóð rfljóta eins og hér hjá okkur.
Mamadu sagði líka, að margir í
átthögum sínum ættu 2—5 konur.
Faðir lians hafði átt tvær konur.
En Mamadu vill aðeins eignast eina
konu, af því að hann álítur, að það
sé ekki friðvænlegt að eiga margar
konur. Hann má ekki kvænast,
nema með leyfi bróður síns. —
Bróðir hans á víst meira að segja
að velja konu handa honum, þegar
hann vill kvænast.
Mamadu er seytján ára gamall
— eða eitthvað nálægt því. Hann
þekkir ekki afmælisdag sinn, en
danska fjölskyldan, sem hann býr
hjá, hefur gefið honunn 1. ágúst
fyrir afmælisdag. Og sá dagur er
eins góður til þess og hver annar.
(Dansk Börneblad. — E. S. þýddi.)