Vorið - 01.12.1949, Page 25
V O R I Ð
143
orðum, er ekki líklegur til að verða
mikill maður.
Ertu alltaf hlýðinn við foreldra
þína og kennara.
Ef svo er, eru miklar líkur til,
að þú verðir lánsmaður, því að sá,
sem kann að hlýða þeim, sem vilja
honum vel, er gott mannsefni.
Ertu dýravinur?
Ef svo er, er það hamingjumerki.
Því að sá, sem er góður við dýr, er
líka góður við menn. En kærleikur-
inn er æðstur allra dygða.
Ertu hjálpfús við aðra, t. d.
mömmu þína og pabba þinn?
Ef svo er, ertu líklega ágætur
drengur eða ágæt stúlka, því að
það, að vera alltaf fús að hjálpa
öðrum, spáir góðu.
Ertu reglusamur?
Ef svo er, ef þú hefur alla hluti
á sínum stað, ert alltaf þar, sem þú
átt að vera, og gerir alltaf allt það,
sem þú átt að gera á rétturn tíma,
vildi ég hafa þig í mínum skóla.
Hefurðu nokkurn tíma byrjað að
reykja?
Ef svo er, áttu að hætta því sam-
stundis, því að reykingar eru bæði
peningaþjófur, og þó miklu frem-
ur liættulegar heilsu þinni og sið-
ferði. Reykinga-drengi og -stúlkur
vildi ég ekki hafa í mínum skóla,
eða í minni þjónustu..
Nú skuluð þið lesa þessar spurn-
ingar hægt og svara þeim með sjálf-
um ykkur. Ef þið þut'fið að lagfæx'a
eitthvað í fari ykkar, þá byrjið
strax. Eins og þið vitið, eru 365
dagar í árinu. Þið eigið að nota þá
alla til að ala ykkur upp og þjálfa
í því, sem gott er. Ef þið gerið það,
verður gaman að hitta ykkur næst.
H. J. M.
Efnilegur rœðuskörungur.
Kennarinn: „Eins og þiS vitið, börnin
góð, þá er maðurinn öðruvísi en dýrin,
að því leyti, að hann veit, hvað hann er.
Hann veit að hann er maður, en dýrið
veit ekki að það er dýr. Ef svínið vissi,
að það væri svín, þá. . . . “
Lærisveinninn greip fram í: „I>á væri
það maður.“