Bjarmi - 01.01.1908, Blaðsíða 10
8
B .1 A R M I
Sú sorgarfregn berst oss, þegar
blað vort er að fara úr prentsmiðj-
unni, að síra Zópliónías Halldórsson,
prófastur í Viðvik, hafi andast úr
lungnabólgu 3. þ. m. Hans verður
nánar gelið í næsta blaði.
Erlendis.
Björnstjerne Björnsson hélt nýlega
tölu lijá guðfræðisstúdentum í Krist-
janíu og sagði þar meðal annars:
»Sumir munu í svipinn gruna mig
um, að ég starfi að því, að rífa nið-
ur kristindóminn. Nei, ég er ofmik-
ill sálarfræðingur til þess, að ég sjái
ekki, að kristindómurinn er þjóð vorri
óendanlega mikill styrkur, og ég er
viss um, að bann verður framvegis
aflið mikla, sem lyftir þjóð vorri. I’ví
er það alvarleg ósk mín, að það
verði full alvara i guðssambandinu.
Og það getur ekki orðið, nema trúar-
bragðaskólinn sé aðskilinn frá öðrum
skólum. Eg ælla að biðja yður að
starfa að þessu — —«.
Esperantó breiðist óðum út. Yms
alþjóðafélög, bæði krislileg og önnur,
mæ!a eindregið með því máli, enda
væri milcið unnið, ef allir fulltrúar
slíkra félaga gætu talað sama málið,
þegar þing eru haldin. Svo er mælt,
að prédikað sé á esperanló í lcyrkju
nokkurri í Konstantínópel.
Keisari Pjóðuerja kvað hafa biblí-
una eina bóka í svefnherbergi sínu,
og er hún mjög víða undirstrikuð.
Þau keisarahjónin lesa í biblíunni og
gera bæn sína á bnjánum á hverju
kvöldi, áður en þau ganga lil hvíldar.
(Budbæreren).
Fyrsta járnbrautin í Danmörku var
Iögð frá Kaupmannahöfn til Hróars-
keldu fyrir 60 árum. Kristján 8. fór
sjálfur með fyrstu járnbrautarlestinni
til Hróarskeldu. í »Berlingi« stóð
þann dag: »Lestin með konunginn
er slysalaust komin fram hjá Valby«.
Hljóðfæraleikaraflokkur var látinn
fara með konungslestinni og spilaði
bann: »Verndaðu konunginn, vold-
ugi Drottinn«, til þess að konungur
skyldi ekki verða ofhræddur.
(Væbneren).
Fátœk ekkja leitaði einhverju sínni
bjálpar hjá trúuðum efnamanni og
veilLi hann benni svo ríkmannlega
gjöf, að konan gat ekki tára bundist.
»Þegar börnin mín stækka skal ég
kenna þcim að minnast velgerða-
manns okkar«, sagði hún. wl’að er
óþarli, kona góð«, svaraði maðurinn,
»við erum ekki vön að þakka sk\j-
unum fyrir regnið. Kennið heldur
börnum yðar að minnast hans, sem
gefur bæði ský og regn«.
SA-MEItVItVGfItV, mánaðarrit liins ev.lút. kirkjuf. ísl. í Vesturheimi. Rit-
stjóri: síra Jón Bjarnason í Winnepeg. Hvert nr. 2 arkir. Barnablaðið »Börnin« er
sérstök dcild í »Sam.« undir ritstjórn síra N. Steingríms Porlákssonar. Verð hér á
landi kr. 2,00. Fæst hjá cand. S. Á. Gíslasyni i Rvík.
1 í.IAIOII, krislilegt heimilisblað. Kenmr út tvisvar í mánuði. Kostar hér
á landi 1 kr. 50 a. og 75 cent í Ameríku. Borgist fyrir 1. október. — Útsendingu og
afgreiðslu annast bókbindararnir Bjarni ívarsson og Jónas Sveinsson, Laugavegi 42,
talsimi 118. Einnig veita þeir mótlöku borgun fyrir blaðið.
Útgefandi: Hlutafélag í Reykjavík.
Ritstjóri: Bjarni Jónsson kennari, Kárastíg 2, Reykjavílc.
Prentsmiöjan Gtilenberg.
i