Bjarmi - 01.05.1908, Qupperneq 1
BJARMI
== KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ =
II. ái
'JL
Reyk|avík, 1. maí 1908.
10. tbl.
»/ nafni Jesú Kris/s frá Nazaret, pá gakk pú«.
Post. 3, 6.
Kraftur Krists kærleika.
(Post. 3, 1—10).
Margir af þeim, sem gengu inn í
helgidóminn, til þess að biðjast fyrir,
hafa víst árum saman gengið fram
hjá vesalings halla manninum, sem
daglega var lagður við dyr helgi-
dómsins, til þess hann beiddist ölm-
usu af þeim, sem gengu inn. Og
líklega liafa þcir gefið honum ein-
hverja ölmusu við og við, en síðan
gengið inn og heðisl fyrir.
En halti maðurinn var haltur eftir
sem áður.
En svo ganga tveir menn inn í
musterið, sama erindis og hinir.
Halti maðurinn sér þá og hiður þá
ölmusu. Og þeir standa við og horfa
á hann háðir saman.
Þessir tveir menn voru hinirsönnu
bænarinnar menn. Þeir höfðu verið
með Jesú frá Nazaret. Þeir höfðu
verið sjónarvottar að kærleika hans
við halla menn, hæði við dyr helgi-
dómsins og annarsstaðar, Þeir eru
fullir af anda Krists og kærleiki lians
knýr þá lil að hjálpa þessum nauð-
stadda manni. Þeir eiga livorki silf-
ur né gull, en þeir vita, að þeir geta
gert hann alheilan með einu orði í
nafni Krists, því hann hafði sagt:
»Hvers þér hiðjið föðurinn í mínu
nafni, það mun hann veila yður«.
Þeir vissu, að kærleika Iírists fylgdi
líka kraftur hans. Og svo segja þeir
við halta manninn: »Líttu á okkurk
En hann starði á þá í þeirri von
að fá eitthvað hjá þeim. Hann vissi,
að þeir höfðu verið með Jesú frá
Nazaret, sem hafði læknað svo marg-
an haltan mann. Það má skilja, að
þetta ávarp þeirra haíi’ vakið hjá
honum vonir um, að þeir hefðu
eitlhvað af liknarkrafti Jesú. Hin
innilega hluttekning, sem hefir lýst
sér í ávarpi þeirra, gat hal'a vakið
hjá honum það traust til þeirra.
Hann horfir íastar á þá, en nokkurn
annan, sem inn hafði gengið, eins og
hann búist við meiru en venjulegri
ölmusugjöf af þeim. Og þeir vita,
hvað þeir hafa og geta gefið honum.
Þeir höfðu kraft Krists; þeir vissu,
að þeir voru fátækir, en gátu þó
auðgað marga. Og þá segir Pétur:
»Silfur og gull á ég ekki, en það,
sem ég hefi, það gef ég þér: I nafni
Jesú Krists frá Nazaret, þágakkþú!«
Og þá gerðist það, sem alla furðaði
á og öllum þólti ómögulegt: »fætur
hans og öklar urðu styrkvir og hann
spratt upp og slóð og gekk«. Síðan
fer hann með þcim inn i helgidóm-
inn og gengur um kring og hleypur
og lofar guð. Og alt fólkið horfði á.
Þeir, sem á undan höfðu gengið
inn í musterið, hafa ekki hal’t hjart-
að svo fult af kærleika Jesú eða
þvílíka trú á krafti hans, eins og
Pétur og Jóhannes. Þeir hafa heldur