Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.05.1908, Qupperneq 8

Bjarmi - 01.05.1908, Qupperneq 8
80 B J A R M I sjálfum mér: hann er guð, og gæti eg að eins komist að sannleikanum í því, hvað eg er sjálfur, þá mj'ndi eg komast að raun um, að cg cr guð líkav.. Hvnð cr Kristnr? »Svo undarlegl sem einhverjum af les- endum mínum kann að virðast það, þá trúi eg þvi, sem trúarjátningarnar segja uin persónu Jesú; en eg trúi því á þann hátt, að ekkert skilur á milli hans og annara manna. Jesús er Guð, en pað er- um vér líka. Sú hugmynd er ekki ann- að en blekking, að Jesús sé eini maður- inn, sem liafi verið sonur Guðs. Frásag- an um fæðingu Jesú er skáldskapur, en ekki sannindi. Einfaldasta og eðlilegasta úrlausnin er það, að Jesús var sonur Jósefs«. Hvað er syndin? »Syndin er í sjálfu sér ekki annað en það, að menn eru að leita lífsins, en fara bara ekki rétta leið að því. Guðfræðing- arnir virðast als ckki hafa nokkra skýra hugmynd um það, livað syndin er i raun og veru. Þeir lýsa henni í óákveðnum orðum, eins og hún væri nokkurs konar brot á móti Guðs vilja(I). Pað er óhætt að fullyrða, að cnginn málsmetandi guð- fræðingur trúir því, að fall mannkynsins sé sannsögulegur viðburður. Syndafalls- kenningin lcggur verulegt liaft á trúar- brögðin. Synd er eigingirni eða sjálfs- elska i öllum sínum myndum og ekkert annað«. Hvað er friðþæg’ingin 1 »Margur brezkur herinaður hefir dáið eins lietjulegum dauða eins og Jesús, en enginn hefir lifað eins og hann. Mikil er lokleysan, sem sögð hefir verið og rituð um angisl Drottins vors í Getsemanc. Gangið með J. Keir Ilardie inn í neðri málstofuna (á enska þinginu) og lilustið á tölur hans fyrir rétlvísi við hans eigin flokk, og þá sérðu hvað íriðþægingin er. En einhver spyr: Hverju liefir þá dauði Jesú til vegar komið um það, að Guð geti fyrirgeíið syndir? Als engu, enda þurfti aldrei nokkurs við. Guð er ekki svarinn óvinur manna, heldur er liann faðir, upp- haf og viðhald veru vorrar og takmark allrar vorrar viðleitni. Hversvegna ætt- um vér að þurfa að frelsast frá lionum? Hin eina frelsun, sem vér þurfum að skeyta um, er sú, að cigingirni vor breyt- ist i kærleika. Pessi ummyndun samsvar- ar upprisu, uppstigningu hins eilifa Krists hið innra í oss. Kenning Páls um upp- risu als holds cr ckki annað en lokleysa, þegar liún er skoðuð í ljósi vorrar æðri og meiri þekkingar á alheiminum og lög- um hans«. Hvað er biblían? »Hirtu aldrei um það, hvað biblían seg- ir um það og það, ef þú að eins leitar sannleikans, en trúðu raust Guðs í sjálf- uin þér. Finnirðu Guð ekki í þinni eigin sál, þá finnurðu hann ekki í biblíunni né nokkúrsstaðar annarsstaðar«. Hvernig geta nú leiðtogar kyrkju vorrar lesið vinber af þessum þistlum? BJARMI, kristilegt heimilisblað. Kemur út tvisvar i mánuði. Kostar hér á landi 1 kr. 50 a. og 75 cent í Ameriku. Borgist fyrir 1. október. — Utsendingu, afgreiðslu og innheimtu annast Sigurjón Jónsson, Lækjargötu 6. NYTT IÍIRKJUBLAÐ. Hálfsmánaðarrit fyrir kristindóm og kristi- lega menning, 18 arkir á ári, verð 2 kr., í Vesturheimi 75 cents. Útgefandi Pór- hallur Bjarnarson, prestaskólakennari. SA-MEIlVIlVGfllsr, mánaðarrit hins ev.lút. kirkjuf. ísl. í Vesturheimi. Rit- stjóri: síra Jón Bjarnason í Winnepeg. 24 arkir árg. Verð hér á landi 2 kr. Um- boðsm. á ísl. S. Á. Gíslason, Rvík. Útgefandi: Hlutafélag í Reykjavík. Ritsljóri: Bjarni Jónsson kennari, Kárastíg 2, Reykjavík. Afgreiðslu og innheimtumaður: Sigurjón Jónsson, Lækjargötu 6. Prentsiniðjnn Gutenbcrg.

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.