Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.05.1908, Blaðsíða 5

Bjarmi - 01.05.1908, Blaðsíða 5
B J A R M I 77 trúað öðru, sem er enn þá óskilj- anlegra mannlegri skynsemi. Það trúir ekki, að Guð sé almáttugur, en það trúir þvi, að mönnum sé hægt að gera það, sem Guð á ekki að hafa getað gerl, og hiblian skýr- ir frá. Guð gat ekki látið ösnu Bileams tala, en dauður maður getur farið í handlegg lifandi manns og látið hann skrifa endileysu, sem enginn er fróð- ari fyrir. Það er ekkert launungarmál leng- ur, að nokkrir af kennimönnum landsins hallast að biblíukritik og lika er það ekkert launungarmál, að ótal raddir heyrasl um, að sum- ir þeirra hallist líka að einhverri hinni auðvirðileguslu vantrúarstefnu nútímans, draugatrúnni nýju (spiri- tismus), sem auðvitað er ekkert annað en æfagömul mj'ndbreylt afturgönguhjátrú, en er nú hættu- legri en áður vegna þess, að hún er um leið bein árás á kristindóm- inn og aðalundirstöðu hans, upp- risu frelsarans. Það eru ekki fagnaðarrikar fram- tíðarhorfur fyrir hinn dreifða og daufa kristindóm þjóðar vorrar, að þeir menn, sem gæta eiga hjarðar- innar skuli sjálfir íalla þannig frá því, sem þeir hafa lofað Drotni sin- um, að vera trúir verkamenn i hans vingarði. Það eru ekki sannir læri- sveinar Krists, þjónar Guðs orðs eða trúir hirðar, sem láta leiðast af hverj- um kenningarþyt. Ef mönnum skyldi ekki þykja kristindómurinn nógu fullkomið frelsislögmál og það vera haft á sér að vcra kristinn og boða Jesúm sem Irelsara og Guðs son, — þeir menn geta ekki með góðri samvizku alið sig af lijörðinni, þar eð þeir vilja ekki halda henni við liá haga og vatnslindir, þar sem hjörðin er sælust og það er við hina einföldu, frjálslegu og sáluhjálplegu kenning Jesú Krists. Það hefir verið og er enn mikill doði og deyfð yfir kristilegu trúar- lífi á íslandi og vanþekkingin i kristilegu tillili er mjög rnikil. Það, sem þjóðinni ríður því mest á að öðlast, það er lifandi trú og starfandi krislindómur; það er undirslaða allrar sannrar farsældar og þjóðar- gæfu í tímanlegum og andlegum efnum. Yér, sem eigum að boða þjóð vorri sannleikann og prédika lær- dóminn um Jesúm Ivrist og hann krossfestan, erum vanmáttugir og ónýtir þjónar, en Jesús getur þó sýnt sig máttugan í veikleika vor- um, ef vér viljum af hjarta vera hans starfsmenn og vera honum trúir til dauðans. Vér verðum að þreyja, þangað til vér höfum fengið haustregnið og vorregnið (sbr. Jak. 5, 7). Vér verðum að halda áfram i Drottins Jésú nafni að sá hinu góða sæði og kalla oss til hjálpar sem flesta vér getum, til þess að starfa með oss að útbreiðslu hins góða fagnaðarerindis á voru áslkæra landi. Guði sé lof, að vér eigum marga góða presta, útbúna ágætum hæfi- leikum; en þeir þurfa að leggja sig enn betur fram fyrir málefni Jesú, svo að hans ríki megi koma hing- að til vor. Þeir þurfa að biðja meira og varpa algerlega vilja sínum og lífi á Jesú vald. Prestaköllin eru nú víða orðin svo stór og eríið, að nú verðum vér prestarnir, sem viljum afstýra nýj- um heiðindómi í landinu, að heita á þá, sem trúaðir eru af flokki leik- manna, að taka nú höndum saman við oss og starfa með oss að boðun orðsins og annari kristilegri starfsemi á meðal safnaðanna. En þá, sem hrasað hafa út af veg-

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.