Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.05.1908, Blaðsíða 3

Bjarmi - 01.05.1908, Blaðsíða 3
B J A R M I 75 að þeir geti orðið verkfæri í guðs hendi lil að kenna það öðrum. »Æ, vér það vitum: tár ei tjá, og tregastun ei fær á hel, en — sefast hrygð við hugsun þá og huggast sturlað ástarþel? þú sjálfur, sem vilt hugga harm, berð hlýra föla, votan hvarm«. Þessi orð skáldsins lýsa vel á- standinu, eins og það virðist vera nú alment. Heílr þú kærleika Krists og kraít hans? Ef þér tekst að hugga sjúka og sorgmædda og' leiða villuráfandí menn á réttan veg, svo að þeir sþretti upp, gangi inn í helgidóm guðs til að lofa hann og þakka honum, þá heflr þú kraft Krists kærleika. I’á er þinn kærleikur sannur. Það geturðu haft til marks. Hefir þér tekist þetta? Hefir þér. tekist að hugga nokkurn mann svö, að þú sért viss um, að þú haflr gert hann að vini, sem meðtaki þig í hinar eilifu tjaldbúðir, eða komið því til leiðar, að hann geti glaður vitnað það af eigin reynslu um frelsarann, að sá sé sæll »sem æ í sjúkleik, sorg og eymdar- högum liann sækir /yrst að lækna og hugga Á sumardaginn fyrsta. Blessuð sumarsólin nýja sendi geisla bjarta, hlýja, grœði allra manna mein, veili bœði gagn og gengi, gleðji og liressi víf og drengi, brœði í hjörtum harðan stein. Pegar ég nú fer á fœtur finn ég margar raunabœtur: blessuð sumarsólin sldn, velcur alt með vinarkossi, viltum bendir, léttir krossi. Náðin, drottinn, það er þín. Syngur lóa sœtt i móa, syndir önd á þíðum flóa, brciðum grœnkar grundin fríð, móðurjörðin yngisl aftur — öllu ræður drotlins kraftur, aldrei dvín hans elskan blíð. ó. 11. (kona á Austurlandi). Horfurnar. »Mínir sauðir ráía hing- að og þangað um öll fjöll og allar háar hæðir, þeir eru á sundrungi út um alt landið, enginn spyr eftir þeim, enginn leitar þeirra«. — (Ezeldel 34, 6). Það er tíðum minst á framtiðar- horfurnar nú á íslandi, þegar menn koma saman, og það er ekki nema eðlilegt, þó að-menn hugsi um það efni og geti sér til um framtíð þess lands og þeirrar þjóðar, sem vér elskum og látum oss ant urn. En það er vanalegast, að menn láta huga sinn og tal dvelja við tím- anlegar framtíðarhorfur, framfarir í landsstjórn, búnaði, samgöngum og verzlun, en þeir eru miklu færri, sem hugsa eða lala á mannamótum um andlegar framfarir þjóðar vorr- ar, framíarir í kristilegu trúarlífi og kristilegri starfsemi. Barnafræðslulögin nýju gera aðs vísu ráð fyrir mikilli andlegri menn-

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.