Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1919, Blaðsíða 8

Bjarmi - 01.03.1919, Blaðsíða 8
40 BJARMI /7 ------ ===? Hvaðanæfa. -rrr" — Í Heima. Síra Jakob Björnsson í Saur- bæ í Eyjafirði er nýlega látinn. Hans verður nánar getið síðar. Erlendis. S p a n s k a veikin heíir verið töluvert mannskæð meðal landa vorra vestan hafs, þótt hún færi ekki eins geyst og hjer í Reykjavík, enda voru gerðar þar allskon- ar sóttvarnarráðstafanir hvar sem veikin nálgaðist. Peir, sem dóu, voru flestir á besta aldri, fæddir vestra, og því ókunnir lesendum Bjarma á Fróni. Frú Halldóra Ásgrímsdóttir Halls- sonar, kona síra Sigurðar Ólafssonar í Blaine, andaðist 11. des. f. á., besta prestskona að kunnugra manna sögn. Föðurætt hennar er úr Hjaltadai í Skaga- firði, en móðurætt úr Önundaríirði, en sjálfur er sra Sigurður ættaður úr Rang- árvallasýslu. Pau höfðu verið 11 ár í hjónabandi og áttu 3 börn á lífl. Guðmundur Jónsson Jónssonar úr Dýra- firði og Ragnhildar Jónsdóttur úr Ön- undarfirði, prentari og leikprjedikari i Winnipeg, andaðist 4. des. Hann var einn þeirra sárfáu íslenskra leikmanna lúteskra vestra, sem steig í ræðustól og stýröi guðsþjónustum, og þótti fara það mjög vel úr hendi. Var vöknuð hjá honum svo eindregin löngun eftir að gefa sig allan við trúmálastarfi, að hann ætlaði að fara að byrja nám í vetur til undirbúnings prestsstöðu, enda þótt hann væri komin yfir þrítugt. En þá kom heimfararkallið. Kona hans var Þórunn Sigriður Sigurðardóttir Sölvasonar úr Hjaltadal í Skagafirði, lifir hún mann sinn ásamt 4 börnum þeirra. Kemur oss í hug er vjer íhugum áform Guðm. sál. og hitt jafnframt hvað sumir prestar kirkjufjelagsins voru gamlir er þeir byrjuðu guðfræðisnám, hvort ekki væri ráðlegt að einhverjir truaðir og nám- fúsir piltar lijer heima færu veslur til að nema guðfræði og gerast siðan prestar þar. Það kann að vera óvinnandi vegur fyrir þá vrgna kostnaðar og aldurs að fara að byrja hjer á 10 ára námi til und- irbúnings prestsstöðu, og mega svo bú- ast við ljelegu vinnumannskaupi að loknu námi. Reynist þeir einlægir trúmenn og námfúsir þegar vestur káPlmi, búumst vjer við að bæði tæki þá styttri tíma undir- búningurinn og eins yrðu þeir studdir svo að það yrði þeim miklu kostnaðar- minna en hjer á landi. Ögmundur Sigurösson klæðskeri, bróð- ir Sigurðar bóksala á Akureyri og Steins klæðskera i Vestmannaeyjum, andaðist 11. desember. Hann starfaði töluvert sem umferðabóksali fyrir sjöundadagsmenn. Ber sumstaðar talsvert á trúboði þeirra meöal landa vestan hafs. Norðmaðurinn Gudbrandson, sem dvaldi vetrarlangt við islenskunám hjer við háskólann i Reykja- vik, starfar í Nýja íslandi, og Sigríður Jónsdóttir, ættuð úr Reykhólasveit, er biblíukona í Winnipeg. — Ögmundur sál. var besti drengur, þótt sjerskoðanir hans á laugardcginum ættu enga samleið með Bjarma. Ritstjóri Bjarma sendir áslvinum þcssa fólks hjartanlega samúðarkveðju, og eins öllum hinum, þótt ekki sjeu nefndir, sem hann kyntist á liðnu sumri en nú eiga um sárt að binda; kemur þá Selkirk sjer- staklega I huga vorn, þar sem skörðin urðu svo mörg og stór, ekki síst við frá- fall Bcnsons lögmanns. Dr. J. Wilbur Chapman, einn al' frægustu og bestu vakningaprjedikurum í Ameríku, andaðist rjett fyrir jólin, 60 ára gamall. Andreas Lavik, faðir Jóhannesar Laviks andaðist 18. des. í vetur. Hann var langa hrið ötulasli leiðtogi heimatrúboðs- ins á Vesturströnd Noregs. (»Det vesl- landske Indermissions forbund«) og rit- stjóri málgagns þess, »Sambaandcn«. Síð- ustu árin var hann skólastjóri biblíu- skólans i Björgvin. Ritstjóri Bjarma minnist hans með þakklæti fyrir meðmæli og holi ráð er hann kom í fyrsta sinn til Norvegs árið 1901. Lutliersk Kirketidende, elsta og mcrkasta kirkjublað Norðmanna, skilti um ritstjórn um áiamótin, sra Edv. Sver- drup og Chr. Ihlen prófessor ljetu liana af hendi en við tóku prestarnir Skage- sted, Frövig og Hertzberg. Prentamifljan Gutenbarg.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.