Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.12.1920, Side 1

Bjarmi - 01.12.1920, Side 1
BJARMI = KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ XIV. árg. Reykjavík, 1. des. 1920. 23.-24. tbl. »S(í þjóð, sem gengur í mgrkri, sjer mikið ljós.«. t Matthías Jochumsson andaðist að heimili sínu á Akureyri 18. f. m. rúmlega 85 ára gamall. Hann er fyrir löngu orðinn svo þjóðkunnur maður, að erfitt er að segja nokkuð um hann, sem ekki er öllum þegar áður kunn- ugt. Allir ljóðelskir íslendingar kunna eitthvað af Ijóðum hans og sálmum, og flestir hafa lesið eitthvað af bókum hans ogblaðagrein- um og margt, sem um hann hefir ver- ið ritað. Á 70 ára afmæli hans 1905 gaf David Ösllund út sjerstaka bók um hann, sem þeir Þor- steinn Gíslason, Guðmundur Hannes- son og Guðmundur Finnbogason skrif- uðu. Er kaflinn eftir G. H. einkar- fróðlegur fyrir alla þá, sem ekki hafa kynsl sra M. J. nema af ljóðum hans °g skrifum. Væri freistandi, ef rúmið leyfði, að taka hjer töluvert af þeim kafla, því hann skýrir svo vel meðal annars, hvernig sra M. J. gat ort og þýtt ágæta sannkristna sálma, en þó hina stundina skrifað únítara- og andatrúar-greinar. — »Síra Matthias er tilfinninganna barn«, segir G. H. »Það, sem honum þykir vel og drengi- lega sagt, Iofar hann og lætur hrífast af þvf, jafnt hjá mót- stöðumönnum sem ílokksmönnum sín- um«. Það er alveg í samræmi við þau kynni, sem ritstjóri Bjarma liafði af sra Matthíasi, — og að Bjarmi hlaut bæði sterkorð andmæli og góð meðmæli frá honum. Eng- inn trúmálaand- stæðingur Bjarma, nema einn, hefir sýnt ritstjóra hans eins mikla velvild bæði i viðmóti og brjefum sem sra Matlhías. Og kunnugt er oss um, að þeir eru fleiri en vjer, sem að vísu voru allósamdóma honum í ýmsum trúarefnum, en höfðu þó meiri ánægju að skrafa um þau efni við sra M. J. en margan »flokksbróður« sinn. Einu sinni kom ungur og áhuga- samur guðfræðingur að heimsækja Rik. Jónss.: Maltliías Jocluimsson.

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.