Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1920, Blaðsíða 2

Bjarmi - 01.12.1920, Blaðsíða 2
178 BJARMI sra M. J.; lentu þeir þegar í harðri orðasennu út af kristindóminum, og blöskraði gestinum, hvað gamli prest- urinn var »radikal«. Samt bar hann að lökum upp aðalerindi sitt, hvort sra Matthías vildi ekki þýða hákristi- legan, sænskan sálm, sem gesturinn hafði lært af sænskum stúdentum Dýlega. Sra Matthías las sálminn og sagði: »þetta er fallegur sálmur; komið þjer til mín seinna í dag og sækið þýð- inguna«. Þannig varð til þýðing sálmsins: »Lifðu Jesú — ekkert annað er og verður lifsins hrós; fórna honum, engum öðrum allra fyrstu kærleiksrós«.‘) G. H. segir frá, í fyrnefndum kafla, tildrögunum að hinum gullfögru bæn- arljóðum: »Guð minn, guð, jeg hrópa gegnum myrkrið svarta«. Sýna þau vel guðstraust og trúarþörf skáldsins og ættu að lærast af efasjúkri sam- tíð vorri. Sra Matthías fæddist 11. nóv. 1835 á Skógum í Þorskafirði. Foreldrar hans voru Jochurn Magnússon og kona hans Þóra Einarsdóttir Ólafs- sonar í Skáleyjum. Hann var 24 ára gamall, er hann kom í lærða skól- ann, og var bekkjarbróðir Hallgríms Sveinssonar biskups. Áiið 1863 varð hann stúdent og tók tveim árum síð- ar guðfræðispróf. Vorið 1867 var hann vígður til Kjalarnesþinga og reisti bú í Móum. Hann kvæntist 1866 Elínu Knudsen, dóttur Diðriks Knudsens siniðs í Reykjavík, en misti hana tveim árum síðar úr taugaveiki á annan jóladag. Lá hann þá sjálfur hættulega veikur af sömu veiki. Vorið 1870 giítist hann í annað sinn Ing- 1) Sálmurinn var fyrst prentaður í Bjarma 15. febr. 1909 og stðar í Söngbók æskunnar. veldi, dóttur Ólafs prófasts Johnsens, fyrrum sóknarprests sins á Stað á Reykjanesi. Hún dó vorið eftir, og þá var það, sem hann orti kvæðið góða og alkunna: »Heim til að bjarga þjer hleypti jeg skeið«. Mestan hluta næstu tveggja ára var hann erlendis, í Englandi og Dan- mörku, fjekk lausn frá prestsskap haustið 1873 og tók vorið eftir við ritstjórn Þjóðólfs. Vorið 1875 kvænt- ist hann i þriðja sinn Guðrúnu Run- ólfsdóttur bónda í Saurbæ á Kjalar- nesi, sem lifir mann sinn. Eignuðust þau 11 börn; er Steingrímur læknir elstur þeirra, en mörg hinna dáin. Haustið 1880 hætti hann ritstjórn Þjóðólfs, en gerðist prestur að Odda vorið eftir. 1886 var honum veitt Akureyri, og var þar prestur, uns hann fjekk lausn 1. des. 1899. Síðan hefir hann haft skáldastyrk frá al- þingi, eins og kunnugt er. Ljóðabók hans kom fyrst út 1884, og árin 1902 til 1906 komu ljóðmæli hans út í 5 bindum, en auk þess eru prentaðar eftir hann ýmsar aðrar bækur í bundnu og óbundnu máli, sem of langt yrði bjer að telja. Bænavika K. F. U. M. og K. var haldin eins og venjulegt er þriöju viku nóvem- bers (14.—20. nóv.). Voru þá sambæna- fundir á hverju kvöldi í húsi fjelagsins í Rvík. Eru slíkar sambænir jafnan til mik- illar blessunar, og liin mesta ógæfa að prestarnír skuli ekki alment gangast fyrir þeim úti um alt land. Sumstaðar er raun- ar kæruleysið svo mikið, að þeir yrðu ærið fáir, sem vildu sinna slíku, en víða mundu þó ýmsir trúræknir menn og kon- ur taka því mjög vel að biðja með presti sinum á undan eða eftir messu, eða við önnur hentug tækifæri, — ef prestinn sjálf- an brestur ekki áhuga og skilning í því efni.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.