Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1920, Blaðsíða 5

Bjarmi - 01.12.1920, Blaðsíða 5
BJARMI 181 nú úr yfirhöfn minni og vafði henni utanum barnið, svo settist jeg niður með barnið í fanginu og beið þess að faðir barnsins kæmi heim. En enginn kom. Ljósið á lampanum dvínaði. Jeg var þó alls ekkert hrædd, þótt undarlegt megi virðast. í*að var önnur öflugri kend sem vakin var í huga mínum. Það var sársauki og kvöl, sem jeg hefi borið síðan. Var þetta iðrun? Jeg öfundaði dánu móð- urina, sem hafði borið hita og þunga dagsins og annast litla barnið sitt í fátækt og allsleysi á meðan mátli. Nú var máttur hennar þrotinn. Hún var hnigin í valinn eins og hetja á vígvelli. En jeg sjálfl Liðhlaupinn, svikarinn, morðkvendið, sem hafði troðið á helgustu skyldum lífsins og tilfinningum mannssálarinnarl Þar sat jeg með sofandi smábarn á örm- um mjer, — en í fjarlægð — hafði jeg skilið við veikburða barn og of- urselt það dauðanum. Jeg — móðir- in sjálfl Og nú vöknuðu endurminn- ingar um ógurlegan verknað í skauti nátlmyrkursins. Sjerhvert atvik þeirr- ar skelfingar stundar varð mjer ægi- lega Ijóst. Jeg hjelt jeg væri að missa vitið, eða var jeg nú komin í sjálft víti? Hugsanir mínar voru allar á ringulreið og þó snerist öll mín hugs- un um eitt og hið sama: barnung- ann, sem kjökraði á meðan mátti — og þarnæst þögnin — ógurleg dauð- ans þögn, sem nú Ijet i eyrum mjer likt og þrumugnýr. Jeg kom barninu til fátækrastjór- ans.^ Síðan reyndi jeg af alefli að glepja fyrir sjálfri mjer og — gleyma. Stundum hjelt jeg að það hefði tek- ist. En von bráðar rak jeg mig á að svo var eigi. Samviskan vakti. Ár hafa liðið, ár full af kvöl og volæði. Jeg barst hingað heim aftur. Ætt- jarðarþráin varð mjer ofurefli. Og nú er jeg einna lfkust rekaldi sem brim og brotsjóar hafa hent á milli sín, — einstæðingur með þyngstu byrðina, sem lögð verður á vesalar mannsherðar — byrði syndar og samviskukvala. — Sagan mín er bú- in, æfin senn á enda og nú spyr jeg yður, prestur, getur Guð fyrirgefið mjer? Nú finn jeg, frammi fyrir dauð- anum, að alt veltur á þessu eina orði — fyrirgefning. Jeg hefi eytt æf- inni illa, sóað henni í syndalífi — og endirinn er svo nærri!« Konan þagnaði, þrotin að kröftum. Heimsóknartíminn var löngu liðinn, sjúklingarnir voru farnir að furða sig á hvað löng viðstaða prestsins var orðin. Loks stóð hann á fætur og bjóst til að fara. »Jeg kem til yðar í annað sinn«, sagði hann og rjetti konunni hönd sina. »Og við tölum betur saman um þetta. Nú fel jeg yður honum, sem rjettvíslega dæmir, en sem einnig elskaði heiminn svo að hann sendi son sinn oss mönnum til frelsis. Lát- ið það hughreysta yður. Og hlýðið á það sem Guðs andi vill hvísla að sál yðar. Minnist þess að Guð vill ekki dauða syndugs manns, heldur að liann snúi sjer og lifi, og að það er blóð Jesú Krists, sem hreinsar oss af allri sijnd. Við hans kross er frið að fá, hjá honum er hæli fyrir synd- uga menn. Hann brýtur ekki brák- aðan reir, honum er sundurkramið hjarta þóknanlegt. Fyrir benjar hans eignuðumsl við þann frið, sem synd- in hefir svift okkur«. III. Aðfangadagur jóla var að kvöldi kominn. Jóla annríkið var liðið hjá og ótal mörg barnsaugu horfðu nú brosandi á ljósum prýdd jólatrje eða nutu jóla-

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.