Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1920, Blaðsíða 3

Bjarmi - 01.12.1920, Blaðsíða 3
BJAR MI 179 H ei m i 1 ið. Deild þessa annast Guðrún Lárusdóttlr. .... =í> Hvar er bróðir þinn? Saga eftir Guðránu Lárusdótlur. ---- (Frh.) »Jeg tók það til bragðs að senda eftir yður. Jeg hugsaði með mjer að þjer presturinn, gætuð ef til vill einna helst liðsint mjer eilthvað og bent mjer á livar særð og sjúk önd fær öðlast frið. Frið! Jeg hefl farið á mis við allan frið svo árum skiftir«. »Veslings kona«, sagði presturinn hægt, »yður er óhætt að trúa mjer fyrir raunum yðar. Guð gæfi að jeg gæti bent yður á veg frelsis og frið- ar«. »Jeg fer fljótt yfir sögu, tíminn er naumur. Eitt sinn var jeg ung og lagleg, að því er sumir sögðu. Jeg áleit það sjálf en íhugaði það ekki, að því meiri er hæltan ef sjálfstæði og sómatilfinningu vantar. Jeg ólst upp í kaupstað við iðjuleysi og sjálf- ræði. Fóstra mín var meinlaus og skifti sjer lítið af því þótt jeg kæmi seint heim á kveldin og eyddi lím- anum til einkis ga«ns. t*á þótti mjer vænt um hana fyrir það, síðan hefi jeg sannfærst utn að vetra gat hún ekki gjört mjer. Jeg lagði lag mitt við ljettúðugt fólk, stúlkur og pilta, sem hugsuðu ekki utn annað en glys og skemtanir, og skemtanirnar setn við tókum þátt í voru ekki sem holl- astar, og áhrif þeirra komu fijótt í Ijós í háttalagi mínu. Jeg forðaðist af fremsta megni alla, sem hölðu ýmugust á gjálífi og kæruleysi, og brátt varð mannorð initl svo skert að engin siðlát stúlka vildi vera með mjer. { stað þess að hryggjast yfir því, slærði jeg mig af því i minn hóp og henti óspart gaman að wdyggða- drósunum«, sem jeg svo nefndi. Fóstra mín fór þá að vanda um við mig, en það var helst til um seinan. Nú þóttist jeg vaxin upp úr því að hlusta á áminningar. Einstöku sinnum hvarfl- aði þó að mjer einhverskonar yfir- bótarlöngun, og skeð gæti ef að jeg þá hefði verið svo heppinn að hitta fyrir einhvern, sem hetði gjört sjer far um að skilja sálarlíf mitt og leiða mig á rjettan veg, að mjer hefði orð- ið forðað frá hyldj7pi því, sem jeg barst óðfluga að. En að undantek- inni fóstru minni, sem iðuglega fann að framferði mínu, án þess að það hefði nokkur áhrif á mig, skifti eng- inn sjer af mjer. AUir smáðu mig aðrir en fjelagar rnínir, sem voru á sömu leið og jeg sjálf. Það er satt sem stendur í vísunni: »Hæg er leið til h.......það hallar undan fæti«. Mjer reyndist það svo. Jeg hafði of- urselt sjálfa mig óreglu og siðspill- ingu og loks kom þar, að jeg — — lagði hendur á eigið afkvætni mitt. Mjer lrafði ekki tekist að stylta því aldur með hatrinu, sem jeg bar til þess, frá því fyrst er jeg hafði hug- boð um tilveru þess. — Nú er jeg komin að svartasta þættinum«.--------- Henni varð erfitt um mal og hún þagnaði um stund. Presturinn horfði þegjandi í gaupnir sjer. Aftur tók hún til máls með veikri, titrandi rödd. »Jeg ætla ekki að lýsa því nánar, það nægir að geta þess að jeg ber Kains merkið, — hendur mínar eru ataðar ungbarns blóði. — Pað hlýtur að hafa dáið, þó jeg hefði það injer til afsökunar fyrst í stað, að jeg hefði skilið við það með lífs- marki. — — Síðan eru mörg ár lið- in. Öll þau ár hefi jeg farið latul- flótta eins og Kain forðum, og lifað undir eilífri bölvun syndarinnar. Fyrst í stað var hjarta mitt kaldara jökli, jeg var sneydd sjethverri mannlegri

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.