Bjarmi - 01.08.1921, Page 5
BJARM I
141
Svenskar bækur.
Bjarma hafa verið sendar til um-
tals:
Nordens Kristenhet och Kijrkans
Enhet, Uppsala 1919, 168 bls. Verð
6 kr.
Istands Kyrka och dess Stallning i
Kristenheten, Uppsala 1920, 82 bls.
Verð 3 kr. 25 au1).
Den engelska Kyrkan och Kyrkans
Enhet, Uppsala 1919, 100 bls. Verð
3 kr. 50 aur.
Missionsuppgifter och Míssionsproblem,
Akademiska Frivilliges Missionsfor-
bunds 25 Ársskrift. Uppsala 1921,
190 bls. Verð 5,50.
Olaus Petri-slofnuninni í Uppsöl-
um, sem erkibiskup Svía er formað-
ur fyrir, bauð ýmsurn kirkjulegum
leiðtogum úr nágrannalöndum til að
llytja erindi um kirkjur sínar við
háskólann í Uppsölum. Eru þessi
erindi birl í þrem fyrst-töldu bókum
sem *Diakonistyrelsen« í Stockhólmi
hefir gefið út.
í fyrstu bókinni eru erindin eftir
A. S. Paulsen biskup frá Víborg í
Danmörku, J. Tandberg biskup í
Kristianiu, J. A. Eklund biskup í
Karlstað í Svíþjóð og A. Hjelt pró-
fessor frá Helsingfors í Finnlandi.
Þá (1918) var erfitt að ná til ís-
lands vegna ófriðarins, og því kom
erindi biskups íslands síðar og var
prenlað í sjerstakri bók. Öll þessi
erindi eru fróðleg og ættu að kom-
ast til presta vorra. Mest er af sögu-
legum fróðleik í erindi biskups vors,
og verður kirkjusaga vor íslendinga
ekki jafn ókunn á Norðurlöndum og
áður, ef það nær góðri útbreiðslu,
en minst er þar sagt frá safnaðar-
1) Verðið er alstaðar talið i svenskum
krónum.
starfi og öðrum kirkjulegum hreyf-
ingum samtímans — af skiljanlegum
ástæðum. — Svo sorglega fátt af því
að segja. Af binum fyrirlestrunum er
langmest efni hjá danska biskupnum,
og hreinskilni og sanngirni í ríkum
mæli í nútíma frásögninni.
Prófessor A. J. Carlyle flutti erindið
um ensku kirkjuna, er þar og mikill
sögulegur fróðleikur, fremur lítið sagt
frá nýjum kirkjulegum framkvæmd-
um Englendinga, en langmest heild-
aryfirlit frá trúarheimspekis sjónar-
miði.
Sami útgefandi hefir geíið út: Un-
gerns evangeliska Kristenhet och
Kyrkans Enhet, fyrirlestrar eftir bisk-
up Hemrich Geduly og prófessor Em-
erich von Révéz. Verð 3,25, og Tysk-
lands evangel. Kristenhet, fyrirlestrar
eftir prófessor G. A. Deissmann, síra
F. Siegmund-Schultze, dr. B. Schalter
og F. Rittelmeyer. Verð 3,25.
Afmælisrit háskóla sjálfboða ilytur
margbreyttan og ágætan fróðleik um
kristniboð alment og um fjelagsskap
stúdenta, sem ætla að verða kristni-
boðar. 25 háskólaborgarar á ýmsum
aldri frá öllum Norðurlöndunr —
nema íslandi — eiga þar ritgerðir.
Ættu ritgerðirnar um Kína, Indland,
Abessina, Kongo o. fl. fult erindi til
ísl. mentamanna, sem eru svo fá-
fróðir, sumir hverjir, að þeir balda
að heiðindómurinn sje eins afi'ara-
sæll og kristindómur.
Karl Friis, alþjóðaframkvæmdastjóri
K. F. U. M., skrifar um fyrstu ár
sjálfboðafjelagsins meðal stúdenta.
Leyfum vjer oss að birta hjer nokk-
ur aðalatriði úr þeirri sögu.
Árið 1877, við fulltrúafund K. F. U.
M. í Vesturheimi. Smalar Lúther
Wishard, stúdent, 30 stúdentum á
sjerstakan fund til að ræða um:
Hvers vegna eru svo fáir fjelagar
vorir sannkristnir? Það var byrjun