Bjarmi - 01.08.1921, Page 8
144
BJARMI
við slculum engan mann hafa hjer, pví
áhugi fyrir kristindómsmálefnum er hjer
svo tilfinnanlega lítill pegar enginn prest-
ur er, en fólkið orðið æði margt, og
altaf að fjölga, sjálfsagt yflr 500 ísl. sálir
(eða af ísl. bergi brotnar) hjer í borginni
En jeg veit ekki hvort góður sölumaður
gæti seit eitt blað af Bjarma, eða öðru
góðu málgagni kristinnar kirkju, svo lítið
virðist fólk hjer sinna hinum andlegu
málum. Jeg fyrir mitt leiti, álít Bjarma
aðal trúvarnarrilið sem við ísl. austan
hafs og vestan, eigum nú kost á að lesa
og ætla mjer pví að halda, að forlalla-
lausu, áfram að kaupa pað.
Hjer í Seattle hefur heldur aldrei verið
bygð kirkja fyrir íslendinga og pví paðan
af minna að gera fyrir liana og hennar
málefni, að mörgum finst, prátt fyrir pó _
starfsviðið ætti að vera nógu víðtækt samt
ef aðeins áhugann vantaði ekki.
Öll ströndin hjer norður með er nú
prestlaus sem stendur á meðal Islendinga,
og lítil, eða engin, von um að neinn fáist
til að setjast hjer að enn sem komið er.
Blaine-búar eiga kirkju, og sagt er að
peir haldi uppi sunnudagaskóla og lesi
húslestra í henni siðan síra Sigurður fór
l'rá peim. Sömulciðis er verið að byggja
kirkju á St-Roberts. Heyrst hefur að peir
hjer norður með ströndinni vildu leita
fyrir sjer með að fá prest að heiman frá
íslandi. En hvort peir hafa skrifað nokkr-
um veit jeg ekki.
Hvaðanæfa.
VS .....—....
Heima.
Fríkirkjan, sem sira Lárus Ilall-
dósson gaf út í hálft fjórða ár (1899 —1902),
hefir verið ófáanlegt um hríð, en nú
hefir pað sem til var af upplaginu verið
hundið í laglegt band og kostar nú blaðið
alt (664 bls.) í einni bók 8 kr. — í blað-
inu eru margar ritgerðir, sálmar, sönglög,
myndir og sögur, m. a. »Tómas frændi«,
sem annars er ófáanleg á íslensku. Trú-
hneigðir bókavinir ættu að nota tækifærið
til að eignast góða bók og ódýra. Pjetur
Lárusson nótnasetjari, Hofi Rvík er aðal-
útsölumaður bókarinnar.
í Jólakveðjusjóð: Síra Helgi
Árnason Ólafsf. 10 kr. Síra Porst. Kristjáns-
son Breiðabólsstað 3,25. Síra Ófeigur Vig-
fússon Fellsmúla 26,89 (Skólabörn á Landi
13,59, skólabörn i Holtahrepp 10 kr.,
önnur börn í prcstakallinu 3,30). Síra J.
Finnsson Djúpavogi 20 kr., síra Jóh. Briem
Melstað 10 kr., barnaskólabörn á Akureyri
41,15, í Ólafsvík 32 kr., í Fróðárhreppi 5
kr., í Rvílc 150 kr. — Kærar pakkir. —
Iiandritið í jólakveðjuna 1921 er komið
frá Dönum, og farið aftur á íslensku út.
Pingvallamyndin, sem dönsku sunnudaga-
skólunum var send í vetur sem leiö, hefur
vakið athygli, sem Jólakveðjan nýja ber vott
um. — Um næstu jól verða 1000 myndir
af fossinum í Hamarsfirði sendar Dönum.
Kristniboðsfjelögin, 2i Reykja-
vík og 1 í Hafnarfirði, hjeldu sameigin-
legan fund í Kópavogi 24. f. m. og kom
pangað á 2. liundrað manns. S. A. Gísla-
son stýrði fundinum en aðalræðumenn
voru Nísbet læknir i Ilafnarfirði, sem fer
alfarinn til Englands í sumar, og Ólafía
Jóhannsd. Piltarnir veittu öllum viðstödd-
um kaffi, en til kristniboðs voru gefnar
yfir 200 kr. Mun petta vera fyrsti kristni-
boðsfundur, sem haldinn er á víðavangi
á íslandi.
Erlendís.
B i b 1 í u s k ó 1 i n n danski, sem Skov-
gaard-Petcrsen veitir forstöðu, er að pví
leyti ólikur öðrum bibliuskólum Norður-
landa, að kcnslan fer eingöngu fram með
fyrirlestrum um kristindóminn, og »náms-
fólkið getur stundað atvinnu sína, pótt
pað sæki fyrirlestrana. Og pví er hægt
að hafa pessi bihlíunámskeið jafnsncmma
í t. d. tveim nágrannabæjum. Aðsóknin
er mikil að fyrirlestrum pessum, bæði
hjá Skovgaard-Petersen og aðstoðarmönn-
um hans, og voru í velur 8000 manns alls
fastir áheyrenda peirra í Kaupmannahöfn
og grendinni.
Kunnugir dást að pví hvað Sk.-P. fær
til vegar komið. í vor (25.—30. april) hafði
hann biblíunámsskeið í 4 bæjum í Jótlandi,
hvíldi sig einn dag, og tók pá 3 bæi á
Fjóni í aðra 5 daga. Varð hann pessa
daga að ílytja 5 til 6 erindi og aka í bif-
reið 16 mílur daglega.
Útgefandi Slgurbjörii Á. (itíslnsoii.
Prentsmiðjan Gutenliorg.