Bjarmi - 01.11.1921, Qupperneq 1
BJARMI
KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ
XV. árg.
Reykjavík, 1. nóv. 1921.
»Meistarinn er hjer og vill finna þig«. Jóh. 11, 19—44.
24. tbl.
Meistarinn er hjerí
Jóh. 11, 19-44.
Þá íór hiin burt og kallaði
á systur sina, Mariu, og
sagði einslega: Meistarinn
er hjer og vill finna pig.
María sat grátandi, af því að bróðir
hennar var dáinn. Og altaf var hún
að fárast um það, hvers vegna Jesús
komi ekki, er þær systur gerðu lion-
um boð um, að Lazarus væri orðin
veikur. En þá kom Marta og livíslaði
að henni: »Meistarinn er hjer og vill
finna þigl« Og er hún heyrði það,
stóð hún skjótt upp og fór út til
hans. — Já, þetta er svo eðlilegt og
auðskilið.
Hugsaðu þjer, ef þú værir í nauðum
staddur og fengir svo boð um, að
Jesús væri kominn og vildi finna
Þigl
Kæri vinur! Nú kem jeg til þín og
hvísla þessu sama að þjer: Meistarinn
er hjer og vill finna pig. Hann er hjer.
Einmitt bjerna hjá þjer. Nú á þessari
stundu. Hann hefir fengið boðin, sem
þú sendir honum. Vegna neyðar
þinnar er hann kominn, ef ekki af
öðrum ástæðum. Og nú er hann hjer
hjá þjer með allan sinn fyrirgefandi,
meðaumkv’narsama og miskunnandi
kærleika. 0o nlt vald hefir hann, svo
að hann getur hjálpað þjer, hversu
bágt sem þú átt.
Ó, að jeg, með þessari orðsendingu,
gæti fengið þig til að gjöra eins og
María! Legðu þetta blað frá þjer,
stattu skjólt upp og farðu á fund
Jesú. Og segðu honum, eins og María,
það sem þjer liggur þyngst á hjarta.
Jesús bíður eftir þjer. Ef til vill
er hann búinn að bíða þín lengi.
Hví ber þú ekki fullkomið traust til
hans? Hvi erlu svo þögull um það,
sem að þjer amar? Segðu honum
alt: um veraldlega hugarfarið, sem
leggur eyðandi hömlur á þitt hulda
líf í Guði, — um kuldann, sem hel-
lekur hjartað, — um hinn ýnmlega
syndavana, sem þú berst svo linlega
á móti, og um það, hversu ragur þú
ert að kannast við nafn hans og
hvernig þú lætur ónotuð tækifærin
til að þjóna honum. Segðu lionum
alla lirakfarasögu þíns daglega lífs.
Því að hann er hjer og vill tala við
þig. Og mundu eftir þessu: Vonleysi
þitt og úrræðaleysi er ekki honum
til fyrirstöðu. Þvert á móti. Full-
komna lijálp veilir hann þeim einum,
sem finna til síns eigin vanmáltar.
Pegar Lazarus var dáinn, sagði Jesús
hin ógleymanlegu orð við sorgbitnu
systurnar: Jeg er upprisan og tifið.
Þegar öll önnur sund voru lokuð,
fengu þær að reyna hverju kraftur
Krisls orkaði. Eins verður þú að
deyja frá syndinni og muntu þá reyna
að Kristur er megnugur að vekja þig
til nýs lífs.
Lát þú þjer aldrei gleymast það,
að á rúslum þíns eigin singjarna lífs
leggur Jesús grundvöll musteris síns