Bjarmi - 01.01.1926, Side 16
12
BJÁRMl
skulu nú í stuttu máli tilfærð aðal-
atriði hennar og held jeg þá sje ekki
óviðeigandi yfirskrift
»Ungnm er það allra bezt«.
Láttu ekki dragast að kjósa Jesúm
og þú munt æfinlega reynast honum
trúr haldirðu heilræðin, sem hjer
skal greina:
1. Bein sjónum þinum iil Jesú. Er
syndir þinar ónáða þig, þvi þær
hefir hann allar burt numið. (Gal.
3, 13.). Er freistingin ber að dyr-
um, því að hann situr til hægri
handar föðurnum og hefir alt vald
á himni og jörðu. (Hebr. 7, 25;
Júd. 24). Fylg þú Jesú, engum
öðrum. ,(I. Jóh. 2, 6).
2. Leslu bibliuna a. m. k. 15 minútur
hvern dag.
Byrjaðu á Jóhannesar guðspjall-
inu og lestu svo Lúkasarguðspjall,
þá Postulasöguna, I. Þess., I. Jóh.
og Rómverjabrjefið. Byrjaðu svo
aftur á Matteusarguðspjalli og
hættu ekki fyr en þú hefir lesið
nýja testamentið alt. Byrjaðu lest-
urinn æfinlega með bæn. Lestu svo
hægt og strykaðu undir það, sem
þjer þykir eftirtektaverðast.
3. Láttu ekkert aftra þjer frá að biðja
iðulega.
Bið þú til Guðs á morgnana og
gaktu ekki til verka fyr en þú ert
fullviss um að þú ert með í óslit-
inni sigurför Krists. Bið þú að
kvöldi, að Guð sýni þjer það alt
i fari þínu sem honum er hrygð
að. Játaðu syndir þínar og leitastu
æfinlega við að vera í samfjelag-
inu við Drotlin eins og barn
gagnvart föður. (I. Jóh. 1, 9).
Bið þú á tímum freislinganna, og
bið þú, er þörfin og löngunin
knýr þig. (I. þess. 5, 17).
er nákvæmlega eins og Torrey heftr frá
pví gengið.
4. Kannaslu við Krist fyrir mönnum,
þvi þann mun hann upphefja, er
hann upphefur. (Matt. 10, 32 — 33).
5. Vinn að því, að aðrir gangi Kristi
á hönd. (Matt. 4, 19; Post. 8, 4;
Jóh. 15, 16). Börnum heimsins
mun aldrei takast að gera þig frá-
hverfan Kristi ef þú ert köllun
þinni tr ':r og reynir daglega að
laða þau til hans.
Jeg sá Torrey í það eina skifti og
er mjer miuning hans ómetanlega
dýrmæt; hún mun einatt vekja hjá
mjer löngun til að lofa Guð. —
Varðveit það, sem þjer er trúað fyrir«
skrifaði Páll forðum Tímóteusi. Fyrir
Guðs náð hefir doktor R. A. Torrey
tekisl það; nýguðfræðin var einu
sinni nærri því búin að villa honum
sýn. í hálfa öld hefir hann fyrir Guðs
náð verið merkisberi Krists; og enn
þá berst hann fyrir komu rikisins
svo að honum kveður.
— Kæri gamli Torrey: Fyrir þjer
ber jeg virðingu og tjáli Guði þökk.
Síðan jeg sá þig og heyrði hefir mig
meira langað til að likjast Kristi og
reynast honum hollur.
Óla/ur Óla/sson
(kristniboði).
Pað var afráðið, í samráði við ýmsa
gefendur i »Jólakveðjusjóð«, að senda að
pessu sinni til danskra sunnudagaskóla-
barna biblíu-myndirnar litlu, sem kall-
aðar eru Ljósgeislar hjerlendis.
Fjekk ritstj. »Bjarma« áritanir til yfir
1200 leiðtoga sunnudagaskóla og barna-
guðsþjónusta í Danmörku og sendi hann
hverjum þeirra 2 flokka mynda, 12—11
myndir í bverjum ilokk, í skrautprentuð-
um umbúðum, þar sem á stendur: »Jóla-
kveðja frá islenskura börnum til sunnu-
dagaskólabarna í Danmörku«. Voru ails
sendir 2560 Ljósgeisla-pakkar. Kostnaður-
inn allur við þetta varð um 900 kr., og er
allur greiddur. — Borist hafa mörg þakkar-
bréf frá Danmörku fyrir sendinguna.
Útgefandi Sigurbjörn Á. OíHlngon.
Prentsmiðjan Gutenberg.