Bjarmi

Volume

Bjarmi - 15.02.1926, Page 14

Bjarmi - 15.02.1926, Page 14
50 BJ ARMI þær hörmungar, sem ótal menn hafa átt og eiga enn við að búa hjer á jörðu? — Vjer vitum að hreinasta og dýpsta gleði góðra manna er að hjálpa þeim, sem bágt eiga, en jafn- framt þyngsta raun, ef ógæfubörnin hrinda frá sjer allri hjálp. Hitt er erfitt að fullyrða nokkuð um, að hve miklu leyti vjer megum heimfæra þá sárs-aukatilfinningu til heilags Guðs, enda þótt fleirum en oss hafi komið í hug, að almennar hugmyndir manna um alsæluua sjeu takmark- aðar og blandaöar skammsýnni eigin- girni, sem eigi þar síst heima. Óþarft tel jeg að skrifa hjer um livernig vansælunni annars heims muni háttað. Fiestum kemur satnan um á vorum dögum, að orð Krists um þau efni sjeu líkingamál, en vafa- laust er hún svo alvarleg að óttalegt er að láta sofandi berast að feigðar ósi, og lofgerðarefni um eilífð fyrir lærisveina Krist að losna við hana og mega hjálpa öðrum frá henni í næsta og síöasta kafla þessarar rit- gjörðar verður þýtt úr vitrunum Sundar Singhs um dýrð himnarikis. Þegar henni er lokið alveg, verður væntanlega birt eitthvað af aðkomnum athugasemdum við þessi efni. S. A. Gislason. Bækur. Olfert Ricard: Udoalgle Skri/ler jor Uugdommen, 25 hefti á 1 kr. eða 5 bindi á 5 kr., í bandi 7,50 kr. og 9 kr. Bækur Olfert Ricards hafa náð töluverðri úlbreiðslu hjerlendis, sem eðlilegt er; en þó hafa ýmsir kvartað um, að þær væru all-dýrar. Nú er bætt úr því með þessari útgáfu, þar sem einar 15 til 1H bækur hans fásl fyrir svipað verð og 4 áður, og er þó frágangur allur í besta lagi. í fyrsta bindinu er Ungdomsliv (áður prentað 29 sinnum; 87000 eintök alls), Krislus og hans Mœnd, Krisíus som Exempel i krisleligt Arbejde og Om at före andre Mennesker til Kristus. II. bindi byrjar á: Lœr os at bede, svo kemur For os og Hoordan Jesus Kristus brugte den helligc Skrijt. Það koma út 2 hefti á mánuði, 7 þeirra eru komin, svo að alt safnið verður komið út að hausti. Afgreiðsla Bjarma er fús til að útvega þessar bækur og senda gegn póstkröfu þeim sem óska. Agentur des Rauhen Hauses í Ham- borg gefur út fjölda góðra trúmála- bóka, sem óhætt er að mæla með við trúmálavini, er skilja þýsku. — f þella sinn leyfuni vjer oss sjerstak- lega að benda á ritsafn er heitir einu nafni »Natur und Bibel in des Har- monie ihrer Offenbarungen« i aðal- umsjón prófessors dr. Johs. Riem. Eru 4 bækur þess útkomnar, allar með myndum, tvær 1924 og tvær 1925. Þær heita: Weltenwerden eftir Johs. Riem, 200 bls., verð 3 mörk. Ursprung des Lebens eftir dr. K. Hauser, 130 bls. Verð 3 m. Herkun/t des Menschen eftir prófessor dr. Hamann, 120 bls. Verð 250 mörk, og Die Sinlflul in Sage und Wissenschaft eftir próf. Johs. Riemann, 250 bls. Verð 4 mörk. Eru allar þessar bækur svo vel skrifaðar, svo fróðlegar og svo líma- bærar, að hrein nautn er að lesa þær. í bókinni um syndaílóðið eru sagðar 303 syndaflóðssögur ýmsra þjóða, að fornu og nýju, og 16 ólíkar skýringar vísindamanna á þeim, alt flokkað og gagnrýnt með þýskri nákvæmni trúaðs vísindamanns.

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.