Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 07.02.1928, Blaðsíða 1

Bjarmi - 07.02.1928, Blaðsíða 1
BJARMI eeeee KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ = XXII. árg. Reykjavík, 7. febr. 1928 5. tbl. „Annan grundvöll getur enginn lagt en þann sem lagður er, sem er Jesús Hristur". — I. Kor. 2, 11. Minning. Að morgni bins 24. janúar s. I. andaðist frú Herdis Pjetursdóttir, Sira Ilálldán Guðjónsson prófastur. eiginkona síra Hálfdánar Guðjóns- sonar prófasts á Sauðárkrók. Hún hafði dvalið hjer í bænum frá því í ágústmán. s. 1. sumar, og kom þá til þess að leita sjer lækn- inga við þrálátum veikindum. Frú Herdís var óvenjulega elsku- verð kona, og með breytni sinni og viðmóti vann hún hylli og traust allra, sem kyntust henni. Hún bar með sjer sálargöfgi og góðleik, sem æfinlega á greiðan veg að manns- hjörtunum. Barnslega trúartraustið hennar veitti henni þrek og þol í harla erfiðum sjúkdómsþrautum, þvi friður Drottins bjó i huga hennar; enda mælti hún aldrei æðruorð, og óskelfd Frú Herdís Pjetursdóttír. horfðist hún í augu við óvin lífsins, með því að lávarður lífsins var hlutskifti hennar, — hún hafði valiö sjer Drottinn að hirði og leiðtoga, og í hönd hans lagði hún bæði lif sitt og dauða. Hún var því vel við- búin að stíga síðasta skrefið — frá dauðanum til lífsins, — hún treysti honum, sem sagði; »Jeg er upprisan og lifið; sá, sem trúir á mig, mun lifa þótt hann deyi«. Sigurhljómar þeirra orða fundu endurhljóm í sálu hennar. Guðs orð var henni kært og

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.