Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 07.02.1928, Side 2

Bjarmi - 07.02.1928, Side 2
34 B J A R M I dýrmætt. Hún fann það glögt, að maðurinn lifir ekki af eiuu saman brauði, »Jeg befi ekki yndi af neinu öðru«, sagði hún eitt sinn við mig. Og jeg fann að alt annað orð varð of hversdagslegt í návist hennar, — andvari eilífðarinnar ljek um hana, og í þeim blæ bliknar jarðarblóm- inn, hismið og hjegóminn. Heiðríkja bins himneska friðar afmáir alla jarð- neska skugga. Heilög alvara ríkti við banabeðinn hennar, friðarrík rósemi, sem bar þess glöggan vott, að Guð var sjálfur hjá henni, og varðveitti hjarta hennar fyrir öllum ótta: »Pótt jeg gangi’ um dauðans dal, haus dimma mjer ei ógna skal«. En dauðinn stóð lengi við dyrnar, og hurðin var í hálfa gátt, — stríðið varð langvint og erfitt. Það verður jafnan hljótt og kaldur gusturinn, þegar sjálfur dauðinn gengur alla leið inn, — og stórt varð skarðið í ástvinahópnum, þegar frú Herdís hvarf úr honum. Söknuðurinn er jafnan sagnafár, og sorgin er þungstíg, en Guðs orð er auðugt af huggun og fyrirheitum, og endurfundavonin blikar eins og björt stjarna í sorgardimmu hug- skotsins. »Voniu segir heilög höndin hnýtir aftur slitinn þráð«. Frú Herdís lætur eftir sig fagrar og Ijútar minningar. Með þökk í huga klökkum minnist jeg hennar, það voru ógleymanlegar stundir, sem jeg átti í návist hennar — hún sýndi mjer svo vel hvernig Guðs barnið þreyir og þolir, biður og biður boð- anna að heiman — og í Drottins friði fór hún heim. Frú Herdís var fædd 4. des. 1872, dóttir Pjeturs Palmasonar og konu hans Jór- unnar Hannesdóttur, er lengi bjuggu á Álfgeirsvöllum í Skagafirði. Hún giftist sira Hálfdáni árið 1897, og eiga þau 1 son á lífi, Helga, sem nú stundar nám i Mentaskólanum. Á myndinni heldur móð- ir hans á honum nokkurra vikna gömlum. Maðurinn hennar kom landveg að norð- an í byrjun janúar, og audnaðist þannig að dvelja hjá henni siðustu vikurnar sem hún lifði. Likið var flutt norður með »Lagarfossi«, en áður var haldin fjölsótl kveðjuathöfn í dómkirkjunni, þar sem biskupinn flutti ræðu. Guðrún Lárusdóttir. Guðsonar-eðli Jesú og blessun þess fyrir oss, synduga menn. Ræða á 4. sunnudag eftir þrettánda eflir sra Siglrygg Guðlaugsson á Núpi. Texti: Matth. 14, 22.-'Í3. Fegar jeg hefi nú lesið og reynt að hugleiða þessa frásögðu viðburði úr lífssögu Jesú, þá finst mjer mig skorta orð til þess að tala um þá verðuglega, — að jeg eigi nefni skiln- ing, til þess að skýra að nokkrum mun innihald þeirra og eðlisásig- komulag. Veit jeg það ráð að koma sjer hjá hugarþreyting þeirra vegna, að dæma þá mishermda og mark- lausa, en mjer finst það líkt örþrifa- ráði Gyðinga, er þeir sögðu að krafta- verk Jesú væru framkvæmd með fulltingi liins illa. Hjer er engin laun- ung á því, sem sjeð verður og reynt. f*úsundir manna eru sjáendur og njótendur almættisverks þess, sem skeð var rjett á undan: mettun 5000 manna, og postularnir allir viðstadd- ir, er teiknin, sem textinn greinir frá, gerast á vatninu. Engan snerti meira en þá sannindi þeirra. Og tveir þeirra sjálfra eru það, sem færa þetta í frásögur.

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.