Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 07.05.1928, Blaðsíða 4

Bjarmi - 07.05.1928, Blaðsíða 4
116 B J ARMl þá leiðist hugur minn enn lengia. Jeg get ekki varist þeirri hugsun, að sáluhjálparefni mín standi í sambandi við það. Hvað getur Jesús meint með því, að minnast á fyrirgefningu synd- anna, er hann útdeilir brauðinu og víninu sem líkama sínum og blóði, ef ekkert samband er þar á milli? Hvað meinar hann með því að segja: »Jeg er brauð lífsins — — og það brauð, sem jeg mun gefa er hold mitt, heiminum til lifs«, — og með allri þeirri ræðu í 6. kap. Jóhannesar- guðspjalls? Jeg fæ ekki leitt mjer í hug, að orð þau sjeu marklaust hjal, nje meining þeirra fjarri því, sem þau leggja fram, er aðrir staðir sanna og staðfesta eiginlegt gildi þeirra. — Það, sem fyrst og síðast verður aðalatriðið fyrir mjer, er, að Jesús hefir látið vilja sinn í ljósi um nautn sakramentisins. Honum ber mjer að fylgja, og mjer á að vera það ljúft vegna elsku þeirrar, sem hann hefir auðsýnt mjer og blessunar þeirrar, sem mjer hlotnast með því. Og orð hans skulu vera lampi fóta minna og ljós á vegum minum um dali jarðneska lífsins, sem víða eru svo þröngir og skuggasamir, að jeg á mörgum stöðum sje skamt frá mjer — mikið of skamt til þess að geta grannskoðað geim alvisku Guðs og veg hans í tíma og rúmi til þess að framkvæma eilífa ákvörðun sfna, svo í þvf, sem snertir frelsun sálar minnar og fullsælu, sem í öðru. »Jeg vil skunda veg boða þinna«, Drottinn minn, því að þú hugsvalar hjarta minu með lind kærleika þíns — þess kærleika, að þú gafst »son þinn ein- gelinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf«. Jeg dirfist því að koma til hans með margar og miklar syndir mínar, og jeg vil af hjarta fara þær leiðir, sera hann vísar mjer. Meðal þeirra er sú, sem vjer tölum um í dag — hvað getur hindrað mig frá að fara hana? Jeg ætlaði einnig að hugleiða það lítið eitt. Jeg hefi heyrt ýmsar mótbárur móti kvöldmáltiðarsakramentinu, metnar til hindrunar hluttöku í því. Má vera, þær hafi við og við læðst í huga minn, en — Guði sje lof — að eins til þess að jeg sæi við nákvæmari hugleiðing fánýti þeirra. Ein þeirra talar á þessa leið: »Jeg skil ekki samband brauðs og víns við líkama Krists og blóð, nje hvernig nautn þess getur haft nokkur áhrif á andlegan hag minn; enda á all- mikill ágreiningur um þetta sjer slað innan kirkjunnar. Jeg vil ekki blanda mjer i það; jeg fylgi og vinn að eins því, sem jeg skil«. — Jeg vesæll maður, má jeg hugsa mjer að rann- saka vegi hins alvitra Guðs? Eða mun jeg fylgja trúlega nýsagðri reglu minni? — Jeg lifi; jeg vinn fyrir við- haldi lífs mins. Skil jeg þá, hvað lifið er? Skil jeg upptök þess og eðli? Skil jeg hvernig hugsanir og tilfinn- ingar færast manna milli, með fram i gegnum það hjálparmeðal, sem nefnist mál? Skil jeg hvaðan kemur gleðin, sorgin, kærleikurinn, hatrið, vonin, þráin, hugsjónin o. s. frv.? Jeg má til — ljúft eða óljúft — að neita þessum spurningum. Jeg skil ekki hvað lífið er, og enginn maður hefir skilið það til þessa; þó vinna þeir allir lífinu. Ef jeg skil ekki lífs- samband vor mannanna, nje sam- eining likama og sálar, þá þarf jeg ekki að búast við þvf, að jeg skilji lifssamband mitt við Guð, nje sam- band kraftar hans við nokkuð það, sem vjer nefnum líkamlegt efni. Hjer verða að gilda orð og verk frelsara mins, sem einn hafði sjeð föðurinn og dýrð hans og gat sagt oss af honum. Hann nefnir brauðið og vínið

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.