Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.1931, Blaðsíða 5

Bjarmi - 01.10.1931, Blaðsíða 5
BJARMI 149 ar og m.yndarleg'ar kirkjur víðast annars- staðar. — Jeg veit ekki hvers þessi eina kirkja á að gjaldá, verði hún látin hang'a þangað til veggirnir hrynja alveg. - - Varla mun það til þess gjört, að erlendir ferða- menn geti tekið myndir af henni og sýnt síðan, sem sýnishorn af húsakynnum Skag- firðinga! Það er mjög fljótlegt að fara í bif- reið frá Víðimýri til Sauðárkróks og það- an austur yfir Hegranes, en úr því versn- ar vegurinn stórum. Vegurinn um Við- víkursveit, frá Austurvötnum að Hjalta- dalsá, þarf mikilla umbóta til að hann verði sæmilegur fyrir bifreiðar hverju sem viðrar. Við komumst í bifreiðinni upp með Hjaltadalsá að vestan, þar sem melarnir enda, fyrir innan Langhús. Sra Guðbrandur í Viðvík sendi hesta á móti okkur yfir mýrina. Gistum við 6 í Viðvík, en 3 fóru í bifreiðinni að Hól- um um kvöldið. Sunnudagsmorguninn lánaði sra Guð- brandur okkur Láru dóttur minni hesta yfir að Saurbæ í Kolbeinsdal. Lá þá leið- in fyrst eftir »latínugötunni« minni gömlu, sem jeg fór oft annan hvern dag, til yfir- heyrslu hjá sra Zophoníasi í Viðvík, er jeg var að læra undir skóla, og las heima latnesku málfræðina, áður en jeg lærði nokkuð í íslenskri málfræði. Svo var far- ið yfir Hjaltadalsá á »horninu«, þar sem jeg fór oft í færu og ófæru. sumar og vetur, fyrir 40 árum, og' síðan upp að æskuheimili mínu, Neðra-Ási, þar um hlað- ið og yfir ásinn og inn með honum inn fyrir Hreðuhóla, sömu troðninga og jeg fór oft fyrrum með kýr og kindur. — Björn Hafliðason, frændi minn, og Ragnheiður Þorláksdóttir kona hans, búa í Saurbæ með 2 uppkomnum dætrum sínum. Varð Lára eftir hjá þeim, og' þær komu svo allar á gæðingum að Hólakirkju um dag- inn, en jeg fór sömu leið til baka að Við- vík. Bifreiðin kom frá Hólum og sótti okk- ur og' sr. Guðbrand, um hádegisbilio. Reyndi jeg nú það, sem mig dreymdi síst um í æsku, að fara hestlaus um Hólaeyr- ai' og' verða þó á undan gæðingunum. Þegar jeg kom í Hólakirkju, rifjaðist upp fyrir mjer fyrsta kirkjuferðin mín þangað. »Milligerðin« nýja milli kórs og kirkju minti mig á gömlu »milligerðina«, sem mjer varð allstarsýnt á, 7 eða 8 ára gömlum, - - en síðar var brotttekin. Er veltilfallið að nú er verið að endurnýja hinn gamla svip kirkjunnar. En sviplaus er hún að utan uns turn verður settur á hana. — Og helst ætti sóknarprestur að sitja á Hólum og hafa ekki aðra út- kirkju en Viðvík, svo að hann gæti kent á Hólaskóla. Nokkuð lapgt verður þangað til prestlaunasjóður Hólakirkju verður fær um að launa þar prest. Sjóðurinn byrj- aði 4. fe.br. 1929 með 200 kr. og hefir nærri tvöfaldast síðan. Er undarlegt, að Skagfirðingar skuli fremur heita á aðrar kirkjur (t. d. Strandarkirkju), en á Hóla- kirkju. Viðtökurnar á Ilólum voru ágætar, en margra gamalla nágranna saknaði jeg. Einu sinni þurfti' jeg ekki að spyrja fólk að heiti við Ilólakirkju - en nú þekti jeg þar vart 10 manns, annað en samferðafólk mitt. — En fleira hefir breytst en fólkið síðan um aldamót. Þegar guðsþjónustan var ný byrjuð, þar sem við sr. S. 0. Thorláks- son töluðum báðir, þá kom í kirkju 14 eða 16 manna hópur frá Blönduósi, er farið hafði heiman að frá sjer. um morguninn. Fyrrum var það rösk dagleið, en nú fer bifreið þann veg á 5 stundum, þótt Vatns- skarð sje farið, sem tvöfaldar vegalengdina. Kaupstaðarprestar víða um lánd segja, að bifreiðaferðir fækki kirkjugestum þeirra að miklum m.un á sumrin. En ekki ætti það að saka, ef bifreiðafólkið temdi sjer að sækja kirkjur upp í sveitum um leið og það fær sjer skemtiför á sunnudög- um.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.