Bjarmi - 01.10.1931, Síða 6
150
B J ARMl
Á 2 stundum komumst við aftur frá
Hólum að Sauðárkrók. Flutti sra S. 0.
Thorláksson þar ræðu í kirkjunni kl. ö
síðd. og sýndi myndir frá Japan kl. 8J í
samkomuhúsinu.
Það gekk seint að komast frá Sauðár-
krók morg.uninn eftir. Vígslubiskup, skóla-
stjóri, læknir og sýslumaður o. fl. vildu
kynnast ofurlítið langferðafólkinu frá
Japan, og sýna því gestrisni, — og á leið-
inni þaðan um Skagafjörðinn varð löng
viðdvöl hjá prestunum í Glaumbæ og
Miklabæ. Komum því ekki til Akureyrar
fyr en svo að rjett var tími til að matast
áður en farið væri í kirkju. Frú Jóhanna
Þór, forstöðukona trúboðsfjelagsins á Ak-
ureyri, hafði heitan mat á borðum handa
okkur öllum, er við komum, og veitti af
mikilli rausn.
Kirkjan var hvergi nærri eins vel sótt
eins og jeg átti von á. Býst jeg við að
ýmsir hafi haldið að við mundum ekki
koma, af því að við komum svo seint til
bæjarins.
Daginn eftir notaði langferðafólkið til
að skreppa fram að Grund og heimsækja
bæjarfógeta og hjeraðslækni, er báðir höfðu
boðið oss heim. Um kvöldið voru skugga-
myndir sýndar frá Japan, og ávarpaði
Steingrímur Matthíasson hjeraðslæknir
kristniboðann á eftir og árnaði honum
allra heilla við starfið framvegis, — en á
eftir bauð trúboðsfjelag kvenna oss til
kaffidrykkju og var þar setið til mið-
nættis.
Frá Akureyri fórum við morguninn
eftir, miðvikudaginn 2. sept., austur yfir
Vaðlaheiði. En verið var að leggja akbraut
austanvert í heiðinni, enda full nauðsyn,
þótt fara megi gamla veginn í þurkatíð
enn þá. Var hvergi staðar numið fyr en
á Hálsi. Prófastshjónin tóku oss með sömu
gestrisni og aðrir, en bættu því við, að
þau fóru bæði með okkur í bifreiðinni aust-
ur að Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði,
en lánuðu drengjum kristniboðans reið-
hesta sína, og þótti drengjunum það feng-
ur í meira lagi. — Höfðu þeir aldrei komið
á hestbak fyr en á íslandi, og töldu Gísla
syni mínum það mjög til gildis, að hann
hefði fyrstur orðið til að útvega þeim hesta
hjer syðra og kent þeim að sitja á hesti.
En æfingar í þeirri list fengu þeir í för-
inni í Viðvík og Glaumbæ og nú síðast
frá Hálsi.
Sra Steingrímur Þorláksson fluttist inn-
an fermingaraldurs með foreldrum sínum
frá Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði vest-
ur um haf, og þetta æskuheimili hans dró að
sjer huga fjölskyldunnar frá Japan. Við
gengum og riðum 11 í hóp spottakorn frá
þjóðveginum þangað heim. Býr þar nú
ekkja með 3 sonum og 3 dætrum, öllum
fulltíða, og elsta »barnið« komið yfir fer-
tugt. Er þar bæði rafleiðsla og »radio«, og
flest húsgögn handaverk þeirra systkina;
mátti þar líta margbreyttan og vandaðan
heimilisiðnað.
Sra S. 0. Th. las kvæði og staðarlýsingu
eftir föður sinn, og var bersýnilegt, að
heimilisfólkinu þótti mikilsvert að heyra
þá átthagarækt, sem kom fram í því öllu.
Á eftir tók hann fjölda mynda af bæjar-
húsum og' umhverfi, en börnin fundu horn
og leggi »handa afa sínum í Ameríku«. —
Iíraðboði hafði komið stuttu á undan oss
að tilkynna gestakomuna, en ekki bar á
því í neinum viðtökum eða veitingum, að
undirbúningur væri lítill að taka á móti 11
gestum. Við fórum með góðum minningum
um gott og myndarlegt sveitaheimili, og'
jeg býst við að heimilisfólkinu hafi þótt
þessi gestakoma nokkur viðburður.
Prófastshjónin frá Hálsi sneru nú heim-
leiðis á hestum sínum, en við ókum aust-
ur að Skjálfandafljóti; skoðuðum Goðafoss
og settumst að til gistingar á Fosshóli og
Ingjaldsstöðum, því að dagur var að
kveldi kominn. Eru þeir bæir báðir í Bárð-
ardal, rjett austan við fljótið.