Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.10.1931, Side 7

Bjarmi - 01.10.1931, Side 7
BJARMI 151 Reykjadalur er næstur Bárðardal og' lág heiði og góður akvegur á milli þeirra. Er einstaklega fagurt að horfa austur af heiðinni í glaða sólskini, eins og var á fimtudagsmorguninn, sem við fór.um þar um. Blasa við mörg vel hýst heimili, og ný- rækt og atorka í blómlegri sveit. Fór jeg þar um fyrir 29 árum og leist vel á sveit- ina,. en mjög hefir mannshöndin prýtt hana síðan. Þegar heiðinni sleppir, er komið á Ilúsavíkurbraut, sem liggur frá Húsavík inn í Reykjadal og á að komast að Mý- vatni. Er rúmlega stundar akstur til Húsavíkur frá þessum vegamótum, svo að við höfðum nægan tíma til að litast um, snerum við því inn í dal og ætluðum að sjá Mývatn, en vor.um alveg ókunn allri leiðinni, — jeg hafði áður farið yfir þver- an dalinn póstleið að Reykjahlíð norðan við Mývatn, en þessi leið stefndi að Skútu- stöðum sunnarlega við vatnið. Húsaskipun sagði til hvar Laugaskóli var, austanvert í dalnum. Er þar myndar- legt heim að líta, en ekki var tími til að koma þar við. Nokkru sunnar fórum við heim að bæ, rjett ofan við brautina, og ætluðum að fá ungling með til leiðsagnar. Vorum við svo heppin, að þetta voru Narfastaðir, æskuheimili og nú sumar- heimili Björns Jakobssonar leikfimiskenn- ara í Reykjavík. Bauðst hann til að fara með okkur upp að Mývatni og reyndist ágætur leiðsögumaður, vissi hvar skárst var að fara, þegar brautin hætti og þekti örnefni öll. Var nú haldið alla leið að Skútustöðum og þótti ferðafólkinu fjallasýnin fögur við Mývatn, og gott að heimsækja sra Her- mann Hjartarson. Prestssetrið og kirkjan eru í góðu lagi, en einkum tókum við eft- ir hvað kirkjugaröurinn bar af mörgum öðrum, steinsteypt, vönduð girðing á þrjá vegu og á fjórðu hlið prýðilega hlaðinn grjótgarður. Frá Mývatni var farið beina leið til Húsavíkur, og hvergi komið við, nema á hlaðið á Grenjaðarstað, en hittum þar eng- an. Frjettum seinna að prestshjónin hefðu ekki verið heima, og- einhverjum, sem heima var hefði orðið svo hverft við er bifreiðin bljes á hlaðinu, að ekki hefði virst ráðlegt að ganga til dyra. Á Húsavík tók Stefán kaupmaður Guð- johnsen móti oss með venjulegri rausn. Kristniboðinn flutti erindi i kirkjunni um kvöldið og á eftir sátum við og prestshjón- in á Húsavík fram á nótt hjá Guðjohnsen, uns ljósin sáust frá Nóvu. Var þá farið um borð og kvaddi jeg »fjölskylduna frá Japan« kl. 2 um nóttina um borð í Nóvu. Hjelt hún áleiðis til Noregs, en við Lára fórum daginn eftir til Akureyrar með bif- reiðinni og þaðan sjóveg heim. Vorum 11 daga í ferðinni og þar af 9 í bifreið. Veður var hið besta alla leiðina og bif- reiðarstjórinn, Pjetur frá Syðsta-Vatni í Skagafirði hinn öruggasti, þótt ókunnugur væri austan Vaðlaheiðar. Var verulega ánægjulegt að kynnast og kynna þau Thor- lákssons hjónin og börn þeirra. Ilverjum þeim, sem kyntist þeim, varð jafnframt vel til þeirra, og sjálfum þótti þeim förin harla ánægjuleg. Að vísu hefði jeg kosið að þau hefðu getað víðar við komið, en áætlunin leyfði; við komum t. d. á heimleið frá Húsavík á tvo bæi, Laxamýri og Knarrarberg', þar sem bæði gestrisni og umgengni öll var á þann veg, að langferða- fólki verður minnisstæð til ánægjuauka. Annars mætti okkur á hverjum deg'i ást- úð og mjer liggur við að segja hugvitssöm gestrisni. Hjer eru þrjú dæmi: 1. Það barst í tal á prestssetri að þar væri æðarvarp. Frú Thorláksson spyrst fyrir um hvort hún geti fengið keypt 2 kg'. af dún. Það er ekki til hreinsað nema eitt kg., og prestskonan gefur henni það, — »borgun má ekki nefna«. 2. Við erum að fara úr kaupstað að

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.