Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.11.1932, Blaðsíða 2

Bjarmi - 01.11.1932, Blaðsíða 2
162 BJARMI næðisstunda með Jesú, þá færðu jólagjaf- ir, sem endast þjer út yfir landamæri jarðlífsins. í þessu er kærleikurinn. »Svo elslcaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn —«. Önnur skiljanleg ástæða finst ekki fyrir því, að sonur Guðs skyldi yfirgefa heimkynni fullkomleikans og íklæðast veikleika okkar. Mennirnir höfðu vissulega ekki unnið til þess, eins og best verður sjeð af viðtökunum. sem hann fjekk, og af þeim kjörurn er söfn- uður hans á við að búa um víða veröld. Jeg les svo aldrei Jóh. 3„ 16. að jeg ekki minnist tveggja ritningarstaða ann- ara„ nfl. Róm. 5, 8.: »En Guð auðsýnir kærleika sinn til vor, þar sem Kristur er fyrir oss dáinn, meðan vjer enn vorum í syndum vorum.« Og I. Jóh. 4, 9—10: »í því birtist kærleikur Guðs meðal vor, að Guð hefir sent sinn eingetinn son í heim- inn til þess að vjer skyldum lifa fyrir hann. 1 þessu er kærleikurinn, ekki að vjer elskuðum Guð, heldur aö hann elsk- aði oss og sendi son sinn til að vera frið- þæging fyrir syndir vorar.« Kærleikur Guðs gat ekki birst rneð á- j)reifanlegra móti, en í persónu og lífi Jesú Krists. Einstöku góðverka hans er getið í guðspjöllunum, ómögulegt var þó að {>au yrðu talin. En við vitum »hversu hann gekk um kring,, gjörði gott og græddi alla, sem af djöflinum voru undirokaðir, því að Guð var með honum.« Og við vit- um að hann sagði: »Komið til mín allir Jrjer,, sem erfiði og þunga eruð hlaðnir, — þann sem til mín kemur mun jeg alls ekki burt reka.« Við eigum flest öll svo erfitt með að trúa öðrum fyrir vandamálum okkar, að nánustu vinir okkar eru þar engin und- antekning. En til eru ótal dauni þass, að þeim sem kynni höfðu af Frelsaranum, fanst eðlilegt. að snúa sjer til hans er í harðbakkann sló, og leita lirræða hjá honum. Það var eitthvað það í fari hans. Hann skorti hvorki hlýleik nje skilning og var þar að auki svo úrræðagóður, að illa fór fyrir öllum,, sem ekki hlýddu ráðum hans. Það er enskt máltæki að »a friend in need, is a friend in deed,« þ. e. sannvin- ur er sá, sem best reynist er í raunir rekur. En það má með sanni segja um Jesús, eru ótal dæmi þess, en hjer skulu tilfærð aðeins tvö eða þrjú. — Eitt sinn leitaði ungur maður á fund Jesú og bar áhyggjuefni sín undir hann! »En Jesús horfði á hann og fór að þykja vænt um hann.« Hve ólíkt okkur, sem eng- in óþægindi viljum hafa af erfiðleikum annara. — Jesús táraðist er hann stóð við gröf Lasarusar, og Gyðingarnir sögðu: Sjá, hve hann hefir elskað hann! Orðin í Jesaja 63„ 9 lýsa best því, hvernig Jesús rayndist vinum sínum: »Ávalt þegar þeir voru í nauðum staddir, kendi hann nauða.« I 8. kap. Jóhannesarguðspjalls er sagt frá átakanlegum og dramtískum viðburði úr æfisögu Jesú, í fáum en skýrum drátt- um. Fræðimenn og Farisear koma með konuy sem staðin hafði verið að hórdómi, og leiða hana fram og segja við hann: Meistari kona þessi er beinlínis staðin að ])vi að drýgja hór. Móse hefir nú boðið oss í lögmálinu, að slíkar konur skuli grýta; hvað segir þú nú um hana? En þetta sögðu þeir til að freista hans, til þess að j>eir hefðu eitthvað að ákæra hann fyrir. — Jesús sagði við þá: Sá yðar, sem syndlaus er, kasti fyrstur steini á hana. En er þeir heyrðu, þetta gengu þeir burt hver eftir annan. En Jesús segir við kon- una: Jeg sakfelli þig ekki heldur. Far þú, syndga ekki upp frá þessu! Að því kemur, kæri tilheyrandi, fyr eða

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.