Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.11.1932, Blaðsíða 27

Bjarmi - 01.11.1932, Blaðsíða 27
BJARMI 187 mjög illa farið, ef svo yrði. Var því á fundin- um um það rætt, hvernig hægt yrði að koma i veg fyrir þetta, en þar sem sýnt var að ekki var að vænta stuðnings frá ríkisstjórninni í því skyni, þótt sjálfsagður væri, þá leist fundar- mönnum ekki önnur leið fær en sú að presta- stjett landsins, með aðstoð kirkjulega sinnaðra leikmanna, festi kaup á staðnum. Fundurinn fól þeim sr. Eiríki á Hesti sr. Ásgeir í Hvammi, Sr. Birni á Borg, sr. Jóni á Prestsbakka og Sr. Sigurði i Stykkishólmi málið til framkvæmda og hafa þeir sent prestum og ýmsum fleiri áskorun til fjársöfnunar til að kaupa Skálholt, svo að »þessi fornhelgi staður geti orðið miðstöð íslenskrar prestastjettar og kristilegrar menningar með þjóðinni.« Þeir gera ráð fyrir að mm 70 prestar að minsta kosti leggi fram fje í þessu skyni, 100 kr. á ari næstu 2 árin Kr. 14000. Sömu menn greiði 50 kr. á ári i 8 ár, þar á eftir Kr. 28000. Frá leikmönnum áætlað Kr. 10000. Samtals Kr. 52000. óneitanlega væri það prestastjettinni sómi, ef þetta tækist og jörðinni yrði svo vel ráð- stafað. — Reynslan sker úr. Lína Síuidell, skáldkona (f 1903) var heilsu- lítil á barnsaldri, og faðir hennar Jónas Sand- ell, merkur prófastur og áhugasamur, sat oft hjá henni og kendi henni einni. Þegar hún var 10 ára, varð hún svo veik, að fætur henn- ar urðu magnvana, og- engin batavon talin. Svo liðu nærri 2 ár, — tvö löng ár. Þá kom breytingin 24. sd. eftir þrenningar- hátíð árið 1844. Alt heimilisfólkið var í kirkju nema Lína og vinnukona, sem átti að líta eftir henni. Lína tók sálmabókina og las þar guð- spjall dagsins, frásögnina um dóttur Jairusar, »og hann átti 12 ára dóttur« las hún. - »En jeg er líka 12 ára,« hugsaði hún, »og fyrst Jesúis gat vakið hana frá dauða, getur hann læknað mig.« Svo bað hún heitt og inni- lega að Jesús kæmi til sín og segði við sig: Stattu upp!« Hún fann að einhver dnsamlegur kraftur eða aflstraumur gagntók hana, og hún gat hreyft fæturnar. »Komdu fljótt með fötin mín.« hróp- aði hún til stúlkunnar. Stúlkan gjörði það hik- andi og forviða. Lína reis upp í rúminu og fór að klæða sig hálfgrátandi af fögnuði. »Stattu ekki á freturna, þá dettur þú, jeg' skal halda um þig,« sagði stúlkan. »Nei, nei, Jesús er búinn að lækna mig. Jeg get gengiö,« svaraöi Lína. - Fremur voru fæf- urnir óstyrkir, en hún gat gengið óstudd. Krafta- verkið var komið í ljós. Það má nú nærri geta um fögnuðinn og þakk- lætið, er Lína tók á móti foreldrum sínum framini í anddyri, og sagði grátfegin: »Jesús læknaði mig.« Hún lifði i 59 ár eftir þetta, og- var aldrei fötldma nema 2 síðustu æfiárin, er heilsan þraut alveg. Margt reyndi hún blítt og strítt, en aldrei gleymdi hún þessum sunnudegi. .lólakreðjan 1932. Hún heldur áfram að koma út, þótt sr. E. With sje látinn. Presturinn, sem nú, sjer um »Indre Missions Börneblad« og efn- ið í Jólakveöjuna, heitir Kai Jensen. Jólakveðj- an flytur nú sem fyrri margar myndir, sögu og ljóð o. fl. —■ Ritstj. Bjarma hefir sjeð um út- sendingu hjerlendis, eins og áður, og á ritið að vera komið nú til barnakennara um allt land. Ekkert getum vjer sent í staðinn í jietta sinn, en þegar fer að safnast í Jólakveðju- sjóð, verður hugsað um það. »ltiissnesk« guðleyslsiuynd. Það mun þegjandi samkomulag í flestum löndum, að skopblöð megi flytja ýmislegt, sem öðrum blöðum þætti sjer ósamboðið; en klúryrði og guðlast verða þau samt að forðast, ef þau vilja ekki sitja á bekk aum- ustu saUrblaða, eða verða fyrir sjerstöku lög- reglueftirliti. »Spegillinn« hefir samt sem áður alveg nýlega flutt mjög óviðkvæmilega mynd, algjörlega i rússneskum guðleysisstíl, og aflaö sjer með því fyrirlitningu fjölda margra heið- virðra manna. Konnnúnistar rússneskir birta iðulega ýmiskonar »grínmyndir« af Drottni, en mjer vitanlega hafa ísl. kommúnistar ekki gjört það ennþá. »Spegillinn« hefir orðið fyrstur til þess ósóma. »Þið þykist Jiurfa að verja Drottinn alheimsins,« svara stundum guðlastarar. En það er misskilningur, við erum að reyna að verja »smælingjana« eða unglingana, að skki sje stol- ið frá þeim besta veganestið, sem þeir geta haft með sjer að heiman, lotningu gagnvart heilög- um Guði. — Hann tekur hinsvegar í taumana, þegar hann sjer hentast, og þá þagnar hæðnis- hlátur gárunganna. í haust, sem leið, stóð ung- un guðleysingi upp frá miðdegisverði og hrækti á Kristsmynd á stofuveggnum, svo sem til að undirstrika guðleysisskraf sitt. Á öðrum morgni á eftir, lá hann svo máttvana, að mjólk- in, sem hann reyndi að drekka, rann út um munnvikin aftnr. »Aðkenning af slagi,« sagði læknirinn, —

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.