Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.11.1932, Blaðsíða 14

Bjarmi - 01.11.1932, Blaðsíða 14
174 BJARMI Kvöld eftir kvöld komu ýmsir nemend- ur skólans k samkomurnar í bænahús- inu, og þar á meðal Sig'ríður. Og svo var f^að eitt kvöldið, að hún kraup á knje til bæna — í fyrsta sinn. Ákvörðunin var gerð. Hún vildi verða sannkristin og taka afleiðingum þess. Og Guð, sem læt- ur Ijós sitt skína í myrkrinu, hann ljet það skína inn í hjarta hennar. Hún sá og viðurkendi synd. sína; en hún sá líka náð Guðs. Hún var þá 17 ára, Þegar hún kom heim af samkomunni um kvöldið, þá sat faðir hennar og var að lesa í dagblöðunum. Hún gengur til hans, leggur hendur um háls honum og segir: »Pabbi minn, nú er jeg frelsuð.« Ilann lítur upp úr blaðinu. »Hvað ertu að segja, barn? Ert þú nú líka farin að gefa þig að trúarvinglinu þarna í bæna- húsinu? Jeg segi þjer það satt, að ef þú ekki hættir því, þá vil jeg ekki hafa þig hjer á heimilinu, þú verður þá að fara í burtu. Nú geturðu valið um.« Þetta var þungt áfall fyrir Sigríði. Hún hafði ekki búist við þessu. En hún þekti föður sinn að því, að þegar hann sagði eitthvað, þá stóð hann við það. Að yfirgéfa Jesú, — nei, það vildi hún ekki; hún kaus þá heldur að fylgja hon- um og taka því, sem að höndum bæri. Daginn eftir stendur unglingsstúlka niðri á bryggju, með tvær krónur í vas- anum og ferðaskrínu í hendinni.^ Það er Sigríður, Hún ætlar til höfuó- staðarins, að útvega sjer vist. Hún fjekk ekki varist gráti, þegar skipið seig frá landi; en þó fann hún til kyrláta, frið- arins í hjarta sínu. Hún bað til Guðs; og orðin; »Sá sem elskar föður og móð- ur meira en mig,« urðu henni til hug- hreystingar. Svo var það nokkru seinna, að brjef kom frá Sigríði. Foreldrar hennar lásu það í sameiningu. Þeim fanst það undar- legt, að það var ekkert í brjefinu er bæri þess vott, að dóttir þeirra væri með nokkra trúar-draumóra. Hún skrifaði bara um algenga hluti. Tíminn leið. Enn kom brjef frá Sig'- ríði. Og enn skrifaði hún aðeins um al- 'genga hluti: um höfuðstaðinn, vistina, sem hún hafði fengið o. s, frv.; en á spáss- íuna hafði hún skrifað þessi orð: »Pabbi og mamma, það er gott að vera frelsuðk Þetta vakti undarlegar og óvenjulegar hugsanir í hjörtum foreldranna. Það var komið undir jól. Snjórinn heiir lagt sinn hvíta feld á jörðina; alt er í vetrargervi. Móðir Sigríðar situr grátandi frammi í eldhúsi. En inni situr faðir hennar í þungum hugsunum. Það var enn komið brjef frá Sigríði. Og enn sem fyr var það um algeng efni. En á spássíuna hafði hún ski'ifað: »Ánægjulegt væri að vera heima um jólin og að þið væruð f.relsuð,« Það er viku fyrir jól. Beinvaxinn en nokkuð feitlaginn maður gengur fram og aftur um bryggjuna og er að bíða eftir strandferðaskipinu. Það er faðir Sigríðar. Þau hafa skrifað henni og boðið henni heim um jólin. Og nú er hann þarna á verði og væntir hennar. Þegar skipið leggur að bryggjunni, er Sigríður með þeim fyrstu í land. Ilún gengur rakleitt til föður síns: »Þökk, pabbi —,« meira gat hún ekki sagt. Á jólanótt er öll fjölskyldan saman kom- in. »Eigum við ekki að lesa jólaguðspjall- ið?« segir húsbóndinn, þegar allir eru sestir umhverfis jólaborðið. Og' svo las hann jólaguðspjallið og síðan gengu þau kringum jólatrjeið og sungu: »Frelsarinn er fœddur«.... Mörg ár eru nú liðin síðan þetta gerð- ist. Sigríður hefir hlotið sitt ákveðna starf

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.