Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.11.1932, Qupperneq 11

Bjarmi - 01.11.1932, Qupperneq 11
B JARMI 171 frá öðrum. Þar sem þjier heyrið lúður- hljóminn, þangað skuluð þjer safnast til vor. Guð vor mun berjast fyrir oss.« Hug- sjón þeirra var að safna hinum dreifðu kröftum um skólastofnunina. Þeir minna á miljarðana, sem ófriðarlöndin voru. að sóa í niðurrif, eyðilegging og dauða, og spyrja svo: Hverju viljum vjer fórna til heilla og blessunar æsku vorri? Bænirn- ar og starfið varð ekki árangurslaust. Það fóru að koma gjafir til fyrirheitna barns- ins, bæði ríkir og' fátækir sýndu frábæra fórnfýsi og samhug og margur gaf af litlu. Einn þeirra sem gengust fyrir fjár- söfnun kom á bæ til fremur fátækra hjóna. Þar höfðu. nýlega orðið skemdir á húsum sökum hvassviðris, og nam skað- inn hundruðum króna. Þar var og' nýaf- staðin jarðarför og langvarandi veikindi með miklum tilkostnaði; en er þau heyrðu að stofna ætti kristilegan æskulýðsskóla, g'áfu þau með gleði síðasta fimm krónu seðillinn, sem þau áttu. Það var safnað mikið fje um veturinn og um vorið var tekið til óspiltra mál- anna við smíðarnar, svo að skólinn gat tekið til starf'a um haustið eins og áæt’- að var. Umsækjendur voru 100, en aðeins 63 gátu komist að og fyrirtæki þetta varð til að ýta undir aðra skólastofnun í Troms, sem lengi hafði verið á döfinni, en aldrei komist í framkvæmd og' var það lýðhá- skóli. En þegar búið vai' að koma honum upp,, fóru að heyrast ýmsar raddir, um að óþarft væri að halda uppi hinum kristi- lega æskulýðsskóla og' veita honum opin- beran styrk. En hann átti meiri ítök en svo að hæg't væri að leggja hann niður, og' það sem vantað hefir á opinbera styrk- inn hefir altaf bæst upp með gjöfum. Skólinn hefir nú starfað í 16 ár og út- skrifað 1300 nemendur. Er þeim öllum mjög hlýtt til skólans síns og halda .þar nemendamót á hverju sumri. Þeir hafa einnig fjelag með sjer, sem vill slá hring um skólann, tengja saman nemendurna og vekja trúarlíf þeirra og ættjarðarást. Fjelagið gefur út mánaðarblað og jóla- hefti, veitir árlega 200 króna aukanáms- styrk,, sem ætlaður er fjelitlum en efni- legum nemendum og er núna að gangast fyrir fjársöfnun í stóran leikfimisskála handa skólanum. Kristilegu æsku.lýðsskólarnir eru orðn- ir margir í Noregi. Það eru nú 39 ár síðan hinn fyrsti þeirra var stofnaður, en á 25 ára afmæli hans voru þeir orðnir 20 og höfðu, útskrifað samtals 10 þúsund nem- endur. Nú eru þeir 27 eða nálega einn í hverju fylki. Stærstur er Framnesskólinn í Harðangri, er hefir undanfarið haft 150- 170 nemendur á ári. Yfirleitt eru skólar þessir vel sóttir. Námsgreinar eru hinar sömu og í neðri deildum gagnfræða- skólanna, en þó fleiri verklegar greinar. Er töluvert kent í fyrirlestrum og reynt að fá sannkristna úrvals kennara. Tilgangur skólanna er„ að vekja ættjarð- arást og áhuga fyrir heill lands og þjóð- ar; ennfremur starfslöngun og starfsgleði og nemendur því látnir hafa ýmislegt með höndum. Skólarnir vilja gera þá að hugsjóna- mönnum, þó ekki eins og Pjetur Gaut (Per Gynt), heldur mönnum, sem berjast fyrir góðri hugsjón. Allt er þetta gott og' bless- að, en þó er ekki hámarkinu náð. Við vígslu fyrsta skólans fórust bónda ein- um þannig orð um hámark þetta: »Eg vil au segja noken ord her og det skal være ifra bondestandet. Og' da vilde eg ha sagt, at me tykkjer svært godt um denna skul- en, for der er so god ei ánd i han.« Þaó er sá andi, sem vill leiða nemendurna til Meistarans mikla, og þess vegna bera skólar þessir kristilegt nafn. Ástæðan til að þeir komust á, var sú, að skólar þeir, sem fyrir voru, þóttu vinna of lítið að því að vekja og næra trúarlíf æskulýðs- ins, þó ekki væru þeir neitt ókristilegir. Þessu vilja kristilegu. æskulýðsskólarnir bæta úr, með góðu framhaldsnámi í kristi-

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.