Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.01.1933, Page 6

Bjarmi - 01.01.1933, Page 6
4 B J A R M I kreddur smeygja sjer inn, og er enda meiri áhugi sýndur i því, að újtbreiða ýmisk. villu (guðspeki o. f 1.), heldur en kristindóminn. í sumum sóknum er þ a ð u n d a>n t e k n i n g, ef nokkur kemur til kirkju yfir árið frá fjöl- mörgum bæjum. Og lítur svo út, sem ]>að fólk allt vilji hvorki sjá nje heyra prestinn sinn, og það þó hann sje vinsæll yfirleitt í söfnuð- um sínum. Ennfremur er á, það bent, að trúaða fólkið sje fáliðað, ósamtaka og aðgjörða- lítið. Sjálfboðaliðarnir að trúmálum sjeu t'áir og smáir, og því ólíklegt tum veruleg áhrif úr þeirri átt. Auk alls þessa, eða öllu heldur eðlileg afleiðing alls þessa, er allskonar spilling, sem fer ægilega í vöxt. — Drykkjuskap- ur og hverskonar ódrengskapur í sambúð karla og kvenna, viðskiftum og þjóðmál- um er svo almenn orðin, að nærri ligg- ur, að samviskusemi og óeigingirni sjeu hafðar að aðhlátri. —----Lotning er horf- in fyrir lögum og skyldum, lotning er horfin fyrir öllu heilögu, biblían hædd og helgihald troðið fótum. Þannig er stundum haldið áfram.— og jeg ætla ekki að andmæla neinu af þessu. Það geta aðrir gjört, ef þeir treysta sjer til. En jeg spyr: Er þetta það eina, sem segja má um framtíðarhorfurnar? Er ekkert að sjá, annað en illviðraský á lofti, og dýki spillingar fyrir fótum æsku- manna? Áður en jeg svara því beinlínis, bið jeg yður að líta með mjer til liðna tímans, svo að þjer getið betur dæmt um, hvort það sje rjett, að allt af sje að syrta að, eða eins1 og trúmálablað orðaði það í haust: »Þannig eru þá horfurnar: dýpra og dýpra niður í glötunargröfina.« Jeg hefi átt í 30 ára stríði við alda- mótaguðfræði og ýmsar villustefnur og tek ekkert aftur af því, sem jeg hefi sagt eða skrifað um skaðvænleg áhrif úr þeim áttum. — En var úr háum söðli að detta fyrir trúmál þjóðar vorrar, þegar þær stefnur komu? Við skulum fyrst líta á undirbúnings- menntun presta á öldinni sem leið, einu mannanna, sem störfuðu að trúmálum hjerlendis alla 19. öldina. Nefni jeg þar sem vitni sannorðan og óvilhallan mann, Pál Melsteð sagnfræðing. Hann var eini kennarinn, annar en ;guð- fræðiskennarinn, sem jeg heyrði nefna nafn Guðs með lotningu í kennslustund, þau 6 ár, sem jeg var í Jatínuskólanum. Pá]l skrifaði í Verði ljós! (apríl bl.) árið 1897 mjög fróðlega grein, sem hann nefndi Guðfræðiskennslan í > Bessastaða- skóla um mína daga. — Páll var í þeim skóla árin 1828—1834. — í þeirri grein stendur t. d.: Jón Jónsson tók við guöfræðiskennslunni í skólanum og hafði hana á hendi alla þá stund, sem hann var skólastjóri á Bessastöðum, eða frá 1810 til 1846. Hann var að m. k. framan af fullkominn skynsemistrúarmaður, þö minna væri farið að bera á þvi, þegar jeg kom í skóla; en fyrir mina daga átti hann að hafa hafnað allflestu hinu yfirnáttúrlega í kristindómnum og jafnvel haldið fram þeirri skoðun, að krafta- verkafrásagnir nýja testamentisins væru goð- sagnir (mýtur). Svo segir hann frá hvað lesið var og lært, allt mjög fátæklegt*), og að bókasafn skólans hafi verið alveg úrelt og engar nýútkomnar guð- fræðibækur keyptar, og bætir svo við: Pað vantaði fjör og framtakssemi i guöfræð- isnámið á Bessastöðum og þess vegna leið það áfram í einhverju dauðamóki. Jeg heid það sje sönnu næst, er jeg segi, að margir unglingar hafi komið í skölann með lifandi kristna trú í hjartanu, en farið þaðan útskrifaðir, ])egar best ljet, með einhvern lítinn trúarneista. Jeg útskrifaðist úr skóla sem góður heiðingi, og þó var jeg eins og allir aðrir, er prófi höfðu lok- ið, kallaður »guðfræðingur«, og fjekk í hend- ,,!) Ritstj. »Verði ljós«, dr. J. H. biskup, segir um þær svo: »Aðalbækurnar, sem þar voru not- aðar við trúmálakensluna, voru ekki stærri en það, að sú þekking, sem þær veittu, mun hafa verið lítið meiri en sú (>ekking, sem heimtuð er af vel undirbúnum fermingarbörnum«. (Sjá Verði ljós! 1897 bls 138)., I

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.