Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1933, Blaðsíða 12

Bjarmi - 01.01.1933, Blaðsíða 12
10 BJARMI Framhaíd frá hls. 7. in andmæli um allt land gegn í'ækkun presta, eins og árið 1932; — hefir þó fækkun presta verið á dagskrá fyrri en nú, og þá mætt ótrúlegu afskiftaleysi »kirkjuvina«. Þeir, sem kvarta um, hvað sjálfboða- starf að kristindómsmálum sje lítið nii, ættu að íhuga, að í því efni hefir þó orð- ið afar mikil breyting, frá því sem áður var, og öll til bóta. Sunnudagaskólar komu fyrst. Jón Helga- son, núv. biskup, stofnaði fyrsta sunnu- dagaskóla íslands, í Reykjavík haustið 1892, og fjekk aðstoð nokkurra guðfræðis- stúdenta og kandidata. Veturinn eftir veitti Bjarni Símonarson, síðar á Brjáns- læk, skólanum forstöðu. Eftir það og fram um aldamót breyttist hann í barnaguðs- þjónustur, sem prestaskólamenn önnuðust að mestu leyti. Árið 1903 stofnaði Kn. Zimsen, fyrv. borgarstjóri, sunnudaga- skóla K.F.U.M. og hefir stýrt honum síð- an. Lengi vel var þetta eini sunnudaga- skólinn innan þjóðkirkjunnar. En nú eru reglubundnar barnaguðsþjónustur og sunnudagaskólar á 10 stöðum, sjálfboða- liðar við það starf um 60 og börnin um 2000, og auk þess hjá Hjálpræðishernum á 8 stöðum, — starfsfólk 35 og börnin 600. Árið 1900 var Kristileg’t unglingafjelag norður í Vatnsdal og K.F.U.M. nýstofn- að í Reykjavík með fermingardrengjum, en ekkert annað kristilegt fjelag á land- inu. —- Kristilegt stúdentafjelag hafði ver- ið stofnað árið 1898, en dó rúmlega árs- gamalt. Þjóðkunnugt er, hvernig K. F.U.M. og K. hefir þroskast siðan um aldamót. Pá var ekkert kristniboðsf jelag, og kristniboðar höfðu ekki sjest hjerlendis um 900 ár. Nú eru kristniboðsfjelögin orðin 7, og' launa íslenzkan kristniboða í Kína og styðja annan Islending til náms á kristniboðsskóla. Þá var ekkert unnið að sjerstöku kristi- legu starfi meðal sjómanna (»sjómanna- missión«). Síðustu 10 árin hefir fastur starfsmaður verið við það starf í Reykja- vík, og nokkru skemur verið unnið að því í Vestmannaeyjum og Siglufirði. Þá fór enginn leikprjedikari um land- ið, nema Lárus Jóhannsson, en nú eru þeir orðnir margir, bæði leikir og lærðir, sem fara þær ferðir við og við, og’ síð- ustu árin sjerstakt heimatrúboð leik- manna í Reykjavík. Þá var sýnódus ærið fátækleg samkoma oftast nær, stóð stundum ekki nema part úr degi með 10 eða 12 prestum, og engir aðrir almennir prestafundir, nema norð- anlands við og við. Nú er það allt gjör- breytt. Prestastefnan fjölmenn í 3 daga, og árlegir prestafundir um land allt að heita má. Auk þess nú í 7 ár búið að halda alm. fundi sóknarnefnda og’ presta í Rvík, og kristniboðsfjelög’in farin að halda þing annaðhvert ár. Þá var ekkert samkomuhús í höfuð- staðnum sjerstaklega ætlað kristilegu sjálfboðastarfi þjóðkirkjufólks. Nú eru þau 2, og í 3 öðrum samkomuhúsum kristi- legai’ samkomur að staðaldri. K.F.U.M.- hús eru og nú í Hafnarfirði og Vest- mannaeyjum, og’ kristniboðsfjelag á Ak- ureyri að undirbúa húsbyggingu Þá komu út aðeins 2 kirkjuleg mánað- arblöð, nú koma út 3 ársrit og ein 4 viku- eða hálfsmánaðarblöð kristileg, auk 4 kristilegra mánaðarblaða utan lúterskrar kirkju. Þá var kirkjusálmabókin og Barnasálm- ar sr. Valdimars Briems einu bækurnar, sem nota mátti við sjálfboðastarfið. Nú eru þær sálmabækur orðnar margar, og komu út 4 í fyrra. Þá var allt skipulagt líknarstarf harla lítið, og varla aðrar líknarstofnanir en fá- tækleg sjúkrahús í stærstu kaupstöðum. Nú eru sjúkrahúsin mörg og sum stór og vönduð, 2 barnahæli árið um kring, 2 sumarhæli, 1 dagheimili fyrir börn, og 3

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.