Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.02.1933, Blaðsíða 1

Bjarmi - 01.02.1933, Blaðsíða 1
XXVII. árg. Reykjavík, 1.—15. febr. 1933. Prá skepnunnar. Barnaprjedikun eftir Johan Lunde, biskup í Osló. Texti: Þró skepnunnar bíður eftir opinberun Guðs barna. Róm. 8, 19. Jeg ætla að skýra ofurlítið fyrir ykkur ritningarorð, sem þið hafið máske aldrei heyrt áður. En þið skuluð sanna, að einn- ig það orð Guðs hefir mikinn lærdóm að færa okkur. Það er svohljóðandi: Þrá skepnunar bíður eftir opinberun Guðs barna. Ykkur finst það máske undarlegt. - »Skepnan«, sem hjer er átt við, er allt, sem Guð hefir skapað: trjen í skóginum, blómin í haganum, fuglarnir í Joftinu, dýr- in og alt annað umhverfis okkur. Það er þá eitthvað, sem allt þetta þráir og bíður eftir. Auðvitað veit það ekki sjálft hvað það er. En Guð veit það, og hann vill líka að við vitum það. En hvað skyldi það þá vera, sem öll skepnán þráir og bíður eftir? Þið verð- ið víst hissa, þegar jeg nú segi ykkur það. Skepnan þráir frelsara; hún bíður — eins og við eftir Jesú. Hún bíður hans ekki til að frelsa sig; sjálf þarfnast hún ekki frelsara. | 3.-4. tbl. Hún þráir og bíður þess, að við menn- irnir verðum Guðs börn, því að þá förum við vel með allt hið skapaða, eins og Guð ætlast til. Á þennan hátt nýtur þá skepn- an góðs af því hjálpræði, sem Jesús hef- ir afrekað okkur. Og þess vegna getur Biblían sagt þetta, að skepnan þrái og bíði eftir opinberun Guðs barna. Og nú skal jeg sanna ykkur þetta með nokkrum dæmum. Guð vill ekki að við ónýtum það, sem hann hefir skapað, heldur á það að vera okkur til gagns og gleði. Hópur barna var á leið út í berjamó. Við veginn uxu langar raðir af undur fögrum jurtum; háir leggir með silfur- hvítum blómum teygðu sig upp móti sól og himni. En hvað haldið þið að einn drengurinn hafi gert? Hann fær sjer lurk og slær blómin niður, hvert á fætur öðru, eins og það væri eitthvert afreksverk, sem hann var að vinna. Hirtingu hefði hann átt skilið að fá, því það var ljótt verk og s.vndsamlegt, sem hann vann. bæði gagnvart Guði og blómunum. Haldið þið að Jesús vilji að við förum þannig með hin indælu blóm Guðs? En þegar þú á fögrum sumardegi geng- ur út í haga, þar sem brekkurnar eru

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.