Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.02.1933, Blaðsíða 3

Bjarmi - 01.02.1933, Blaðsíða 3
BJARMI 19 »Brúnsi minn,« sag-ði hann með svo hlý- legum málróm, að hesturinn leit undr- andi til hans, eins og hann vildi spyrja: Er þetta hann Lars? Og Lars tók um hálsinn á honum og' lagði hann undir vanga sinn. »Nú er jeg orðinn Guðs barn, Brúnn minn,« sagði hann, »og nú skal jeg líka láta þjer líða reglulega vel og við vera góðir vinir!« Og hvað skeði? Brúnn breyttist smátt og smátt og varð svo góður viðureignar og spaklátur, að nágrannarnir sögðu sín í milli, að þeir væru víst báðir búnir að taka sinnaskifti, hann Lars og klárinn hans! Kæru börn! Svona fer, þegar við breyt- um samkvæmt Guðs vilja! Endurtökum nú í sameiningu orðin, sem mjer voru gefin, til að færa ykkur í dag: Þrá skepnunnar bíður eft.ir opinberun Guðs barna. Þegar við erum góð við allt sem lifir, bæði dýr og jurtir, þá lifum við í samræmi við þessi orð. Minnumst þess, að allt er þetta af Guði skapað, og ef við erum Guðs börn, þá ætti okkur að vera ljúft, að vera góð við allt, sem honum tilheyrir. Á. Jóh. Úr skýjunum skín. Jeg stend nú í stríði mjög ströngu og kvíði. 1 bœn mig ef beygi, jeg birtu þá eygi úr skyjum er skín. Jeg kveina og kvarta, en krenki Guðs hjarta. Ó, sál mín, lát sefast um sól Guðs ei efast, Úr skýjunum skín. Þitt Ijós, Guð, mjer lýsi og leið þína vísi: Ef frelsarann fæ jeg og faðmi hans næ jeg, nr skýjunum skín. N. St.gr. Thorláksson, sneri úr norsku. -----—---------- Árið og árslokin 1932. Ölafur Ólafsson ritaði i des 1932. Laufið er bókstaflega hrunið af trján- um, eftir tvær fyrstu frostnæturnar. Þau standa nakin eftir og litlaus. Fallegi, gamli skrúðinn liggur nú við fætur þeirra, velkt- ur og ósjelegur, sem ekki er tiltökumál, úr því komið er fram á miðja jólaföstu. En um líkt leyti og grös tóku að fölna og' trjen hristu af sjer slitrurnar, hafa hveiti-akrarnir ífært sig nýjum möttli, iðjagrænum. Vetrarhveitið brýtur algjör- lega í bága við þá algildu reglu náttúr- unnar, að hætta öllum lífshreyfingum meö haustinu, heldur býður það skammdeginu og kuldanum birginn og er hvítt til upp- skeru um það leyti að vorinu, er íslenskir bændur hafa lokið að bera á tún. Maður er því vanastur, að hjer sjeu mikil staðviðri á haustin, en því erum við þakklátir, sem erum sífelt á ferðalögum um þetta leyti árs. En jafnvel okkur þykir þó nóg komið, þegar ekki hefir sjest ský á lofti í þrjá mánuði fulla. Það er að nokkru leyti blíðviðrinu að þakka undanfarna þrjá mánuði, að jeg man engan tíma ánægjulegri í mínu starfi í Kína. Og svo hefir verið friður og spekt í hjeraðinu, þótt geysað hafi borgara- styrjaldir á tveimur stöðum í landinu all- an þennan tíma. Þess má geta, til dæmis um hve stórt þetta land er og auðugt, að hjer hefir alls ekki gætt neinna áhrifa frá þessum styrjöldum, og almenningur ekki heyrt þeirra getið nema óljóst, hafa

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.