Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1962, Blaðsíða 8

Bjarmi - 01.12.1962, Blaðsíða 8
B BJARMI Þar sem þetta er síðasta tölu- blað Bjarma á þessu ári, þykir rétt að geta hins hélzta, sem gerzt hefur í frjálsa Tcristilega félagsstarfinu tvo undan farna mánuði, þótt það verði mjög stuttlega. Kristnihoðssainkoma Kristniboðsfélagið í Reykjavík (Kristniboðsfélag karla) hefur oft undan farin ár haft sérstaka kristniboðssamkomu í Hall- grímskirkju fyrri hluta október- mánaðar. Að þessu sinni var sú samkoma haldin miðvikudaginn 17. október. Sókn var scemileg. Á samkomunni töluðu kristni- boðarnir Margrét Hróbjarts- dóttir, Benedikt Jasonarson og Felix Ólafsson. Jóhannes Sig- urðsson, formaður Kristniboðs- félags karla, stjórnaði samkom- unni. I lok samkomunnar var tekið á móti gjöfum til kristni- boðsins og gáfust því 5738 kr. KristnilioAsvika Kristniboðssambandið hefur mörg undan farin ár haft kristni- boðsviku, venjúlega síðustu heilu vikuna \í október. Hafa samkomur þessar verið í sam- komusál KFUM og K við Amt- mannsstíg. Að þessu sinni hófst kristniboðsvikan sunnudaginn 21. október. Benedikt Jasonar- son, kristniboði, stjórnaði sam- komunum. Stór hljóðfæra- og söngsveit, sem aðstoðaði á sam- komunum, setti mjög svip sinn á samkomurnar. Að vanda skipt- ust á frásagnir frá kristniboði og boðun Guðs orðs. Rœðumenn vikunnar voru, talið í þeirri röð, sem þeir töluðu: Ólafur Ólafs- son, kristniboði, Bjarni Eyjólfs- son, Margrét Hróbjartsdóttir og Gunnar Sigurjónsson, Ólafur Ólafsson og séra Jónas Gislason, Gunnar Sigurjónsson og Jó- hannes Sigurðsson, Ástráður Sigursteindórsson, séra Jóhann Hannesson, prófessor; Margrét Hróbjartsdóttir og séra Sigur- jón Þ. Árnason. Áuk þessa voru sýndar litskuggamyndir frá Konsó tvö kvöld. Á mánudegin- um voru sýndar myndir, sem Gísli Ámkelsson hafði tekið og kallaði: „Dagur í Konsó‘c. Á föstudagskvöldi sýndi svo Bene- dikt Jasonarson myndir, sem hann hafði tekið. Söngurinn setur alltaf mikinn svip á samkomur þessar og auk söngsveitar þeirrar, sem áður getur, var bœði kvennakór, ein- söngvar, tvísöngur og blandaður kór, sem aðstoðuðu við sam- komurnar. Sókn var góð mörg kvöldin, en tvö kvöld í miðri viku þó minni en venja er. Mun veður eitthvað hafa átt þátt í þvi. Fyrstu tvö kvöldin og síðustu þrjú kvöldin var sóknin hins vegar ágœt. Á sunnudagskvöldi 28. október, er vikunni lauk, gáfust kristni- boðinu í Konsó góðar gjafir frá þeim, sem sótt höfðu samkom- urnar. Álls gáfust því um 61f.000 kr. Var mikil uppörvun af svo óvenjulegri og góðri gjöf. Krisinilioðsvika á Akureyri Sama dag og kristniboðsvikunni lauk i Reykjavik, hófst kristni- boðsvika á Akureyri og lauk henni sunnudaginn Jj. nóvember. Þórir Guðbergsson, starfsmaður Kristniboðssambandsins, sem dvalið hafði á Akureyri þá um þriggja vikna skeið, undirbjó samkomurnar í samráði við stjórnir Kristniboðsfél. kvenna, KFUM og KFUK á Akureyri. Hann stjórnaði og samkomun- um. Rœðumenn á samkomunum voru m.a.: Björgvin Jörgensson, Reynir Þ. Hörgdal, séra Kristján Búsaon, séra Ingólfur Guð- mundsson, Bjarni Eyjólfsson og Jónas Þórisson. Þá voru og ýmsir frœðsluþœttir um kristni- boð og myndir sýndar. Kristni- boðinu gáfust í lok samkomu- vikunnar á þrettánda þúsund krónur. Sókn á samkomurnar var nokkuð misjöfn, tvö eða þrjú kvöld frekar fásótt, en hin kvöldin vel sótt og tvö kvöldin ágœtlega sótt. Krisi nihoffs vika t Keflavík Sama sunnudaginn og vikunni lauk á Akureyri hófst kristni- boðsvika í Keflavikurkirkju. Ólafur Ólafsson, kristniboði, stjórnaði samkomunum. Sam- komurnar í Keflavík voru ágœt- lega sóttar og einkahlega margt unglinga. Ýmsir rœðumenn töl- uðu á samkomunum, en aðál- ræðumennirnir voru, auk Ólafs Ólafssonar, þau Margrét Hró- bjartsdóttir, Benedikt Jasonar- son, Frank Halldórsson, guð- fræðingur, og Jóhannes Sigurðs- son. Margir sjálfboðáliðar úr Reykjavik aðstoðuðu við sam- komurnar bœði með söng og með því að flytja þar stuttar hugleiðingar eða vitnisburði. Þeir, sem að samkomum þess- um unnu, voru mjög glaðir og ánœgðir með undirtektir þœr, sem kristniboðsvikan fékk. — Kristniboðinu gáfust á fjórtánda þúsund krónur í sambandi við viku þessa. ' Kristnihotfssanikonia Kristniboðsfélag kvenna hafði árlega fjáröflunarsamkomu sina fyrsta laugardaginn í nóvember. Margrét Hróbjartsdóttir hafði kristniboðsþátt og Ólafur Ólafs- son, kristniboði, hugleiðingu. Salurinn í Betaníu var fullset- inn. Frú Astrid Hannesson og Sigrún Jónsdóttir sungu tvisöng. Félaginu áskotnaðist á sjöunda þúsund krónur á samkomu þess- ari. Þessar árlegu samkomur Kristniboðsfélags kvenna hafa um margra ára skeið verið reglulegar hátiðarstundir bœði fyrir þœr konur, sem að þeim hafa unnið, og þá kristniboðs- vini, sem fengið hafa að njóta þessara samverustunda.. Félagsstofnun á Akranesi Laugardaginn 17. nóvember var KFUK stofnað á Akranesi. Stofnendur voru þrettán. 1 stjórn voru kosnar þœr Kristrún Ólafsdóttir, Sigurbjörg Jóns- dóttir og Sveinbjörg Arnmunds- dóttir. Sama dag var endurstofn- að KFUM-félag á Akranesi. Stofnendur voru átta og i stjórn kosnir þeiA Geirlaugur Árnason, Jóhannes Ingibjartsson og Sverrir Sverrisson. Um kvöldið var hátiðarsam- koma með veitingum til að minnast tuttugu ára starfs í samkomusálnum í Frón og stofnunar hinna nýju félaga. Geirlaugur Árnason stjórnaði samkomunni. Ýmsir tóku þar til máls og meðál annars voru fluttar kveðjur frá Landssam- bandi KFUM og frá KFUK í Reykjavík. Þeir, sem þátt tóku i samkomu þessari, sögðu, að hún hefði verið mjög hátiðleg og ánœgjuleg. Fulltrúi KFUM var Árni Sigurjónsson, banka- fulltrúi, en Jóna Bjarnadóttir flutti kveðju frá KFUK í Reykjavík. Á sunnudeginum var háldin samkoma í Frón á venjulegum tima, en það er klukkan hálf fimm. Rœðumenn voru Árni Sigurjónsson og Gunnar Sigur- jónsson. Samkoman var vel sótt, miðað við það, sem vandi er. Um kvöldið var svo samkoma í Akraneskirkju. Hún var sœmi- lega sótt. Á samkomunni töluðu þeir séra Jónas Gíslason og Gunnar Sigurjónsson. Hópur úr Reykjavík söng og lék á hljóð- færi. Eins og kunnugt er hefur barna- og unglingastarf um langt skeið verið í Frón á Ákranesi, án þess þó, að þar hafi verið nokkur formleg félagsstarfsemi eða stjórn. Var nú tálin nauðsyn fyr- ir starfið, að það yrði fastar mótað og þess vegna voru félög- in mynduð og stjórnir kosnar. Munu þau nú annast barna- og unglingastarfið í Frón svo og samkomurnar. 1 sunnudagaskól- anum þar voru 150 börn þenn- an sunnudag, en auk þess eru ákaflega vel sóttir stúlknafund- ir á mánudagskvöldum. Þá hafa og verið þar biblíulestrar og drengjafundir. Loks má geta þess, að á Ákranesi er starfandi kristniboðsflokkur, sem heitir Sjöstjarnan. Enn fremur hafa um margra ára skeið nokkrar konur komið saman á vinnu- kvöld og hefur kristniboðið not- ið góðs af sölu muna þeirra, sem þœr hafa unnið. Einnig hefur sumarstarfið í ölver fengið nokkurn fjárliagsstuðning í sambandi við bazar þann, sem vinnuflokkurinn hefur haft. K.F.U.M. og K. Barna- og unglingastarfið í KFUM og K hófst i byrjun októ- ber eins og að vanda. Félögin starfa nú á fjórum stöðum í bœnum: á Amtmannsstig 2B, Kirkjuteig 33, Langagerði 1 og á Holtavegi. / húsi félaganna við Holtaveg hófst starfið lJj. október með því, að stofnuð var þar yngri deild drengja á fundi kl. 1,30 e. h. 90 drengir mættu á þessum stofnfundi. Starf fyrir telpur hófst kl. 3 þennan sama dag. UnglingadeildMrstarf hefur ekki hafizt ennþá þar innfrá. Yngstu deildir félaganna hafa verið vel sóttar sunnudagana i októbermánuði. Sóknin i sunnu- dagaskóla hefur verið vaxandi, svo og i yngri deildinni við Amt- mannsstíg. Sókn í yngri deild- unum í úthverfunum hefur ver- ið svipuð alla sunnudagana. Sókn hefur verið sérstaklega mikil i yngri deild KFUK við Amtmannsstíg og það svo, að stundum hefur verið fullt alveg afturúr, þegar stóri samkomu- sálur félaganna hefur verið stækkaður eins og unnt er. Aðáldeildir félaganna voru einn- ig vel sóttar i októbermánuði. Að vísu voru ekki nema tveir fundir í Aðáldeild KFUM þann mánuð, vegna kristniboðsviku, sem háldin var, en þeir voru báð- ir ágœtlega sóttir. Svipað má segja um álmennu samkomurnar á sunnudögum. Fyrsta sunnu- dag mánaðarins var eins og vant er fórnarsamkoma og komu þá inn kr. 11.765,00. Auk venjúlegra unglingadeildar- funda, fyrir pilta 13—17 ára, sem haldnir eru á föstudags- kvöldum, hefur unglingadeildin við Amtmannsstig haft tóm- . ij stundakvöld á þriðjudögum, mjög vel sótt, og svokölluð kunningjakvöld tvisvar í mán- uðinum, á miðvikudegi. Voru þau œtluð elztu piltunum í U.D. og voru bœði mjög vél sótt. Sama má segja um bibliulestrar- hóp, sem sérstaklega er œtlaður unglingum og er á mánudags- kvöldum. K.S.S. Aðalfundur Kristilegra skóla- samtaka er venjulega í byrjun starfsvetrarins. Að þessu sinni var hann laugardaginn 13. októ- ber. Aðálfundurinn var vel sótt- ur, nálœgt 80 skólanemendur. Kosnir voru í stjórn Samták- anna Þórður Búason, Stina Gisladóttir og Valgeir Ástráðs- son. Verkaskipting innan stjórn- arinnar er sú, að Þórður Búason er formaður, Stína Gísladóttir ritari og Valgeir Ástráðsson gjáldkeri. Fundir í Skólasam- tökunum voru vel sóttir i októ- bermánuði. Félagið hefur nú eins og áður bœnastundir fyrir meðlimi sína á þriðjudagskvöld- um og laugardögum. FRÁ STARFINU

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.