Bjarmi - 01.07.1968, Blaðsíða 1
Senn eru liðin 2000 ár síðan
Jesús gaf skipun sína um að
boða fagnaðarerindið öllum
þjóðum. Enn er þessi skipun í
fullu gildi og megin-driffjöður
ails kristniboðs. Þrátt fyrir allt,
sem gert hefur verið, er tak-
markið samt enn í órafjarlægð.
Gleðiboðskapurinn á ekki aðeins
að ná til margra, heldur allra
þjóða. Þó eru enn milljónir
manna, sem hafa ekki heyrt
hann, og með hinni öru fólks-
fjölgun, fjölgar ekki-kristnum
mönnum með hverju ári sem
líður.
í þessu efni er kristniboðið
í Japan engin undantekning.
Fjöldi safnaðarmeðlima hefur
enn ekki náð einum hundraðs-
hluta íbúanna. Árið 1945 voru
stórir hlutar ríkisins í rústum
og átti það einnig við um f jölda
kirkna. En að örstuttum tíma
liðnum streymdu þangað hundr-
uð kristniboða og dyrnar virt-
ust standa þeim opnari en nokk-
urn tíma áður. Reynslan sýndi
þó fljótlega, að starfið var ekki
auðvelt. Ekki skorti mennina á
þessu eyríki. Alls staðar úir og
grúir af fólki, enda fjölgar þjóð-
inni um milljón á hverju ári.
Þrátt fyrir þetta voru það til-
tölulega fáir einstaklingar, sem
kristniboðið náði til. í því landi
er fátítt, að kirkjur séu fullsetn-
ar. Það var þess vegna ekki und-
arlegt, þótt menn leituðu nýrra
leiða og tækja í þjónustu fagn-
aðarerindisins. Árið 1951 var
leyfður einkarekstur útvarps-
stöðva. Þetta markaði djúp spor
í sögu kristniboðsins í Japan,
því þá opnaðist möguleikinn til
að kaupa tíma til útsendingar
kristilegs útvarpsefnis. Á þenn-
an hátt opnaðist ný leið til millj-
óna manna með boðskap hjálp-
ræðisins.
Framh. á 4. síðu.
Hið heilaga
fjall Japans,
Fujiama, gnæfir
til himins sem
tákn hreinleiks
og fegurðar.
Samt hefur þaft
um aldir verift
vottur harm-
leiks margra
friðvana
hjartna.