Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.07.1968, Blaðsíða 13

Bjarmi - 01.07.1968, Blaðsíða 13
(--—---------------------------------- GÓÐI JESÚS \____________________________ Ég er svo ungur. Það er svo ljúft að lifa; sól- in skín svo skært; dagurinn fullur af lærdómi og leik; nóttin svo rósöm og svefninn svo vær. Ég veit þú ert með mér, góði Jesús; þú sem sjálfur varst barn; þú þekkir barnsins glaða hjarta. Þér vil ég líkjast, og þig vil ég elska. Góði Jesús! Góði Jesús! Ég er svo ungur. Það er svo ljúft að lifa. Sólin skín svo skært. Skuggarnir fullir af draumum. Vorið er fullt af vonum og þrá. Æskan svo björt og fögur. Veröldin er svo víð og stór, og ég finn í mér kraftana vaxa. Ég veit þú ert með mér, mildi Jesús. Þú varst sjálfur æskumað- ur og þekkir æskunnar þrá; þekkir drauma sælu um framtíðar hreysti og fagra dáð. Þér vil ég fylgja. Góði Jesús! Ó, Jesús, ég er enn á bezta skeiði, og vinnu- þrótt hef ég, og skyldu lífsins skil ég; byrðar margra hlutverka hvíla þegar á mér, en þær eru enn ekki svo þungar, og sæl eru viðfangsefni, og sælt að finna orku og kraft til þess að fást við þau. Hádegið er að nálgast, hitinn að vaxa og þungi dagsins hvílir yfir sem ok. En þú barst Eftir séra Friðrik Friðriksson einnig hita og þunga dagsins og fannst ok fyrir- hyggjunar fyrir þér og þínum hvíla á þér í vinnu- stofunni í Nazaret. Þú skilur því einnig áhyggj- ur og umsvif og þreytu og þunga, ábyrgð og erf- iði manndómsáranna. Ég vil ganga undir ok með þér, því þitt ok er indælt og byrði þín er létt og í þér finnur hjartað hvíld. Ég kem til þín og vil vera í þér, að þú megir kenna mér að gjöra vilja þinn og þíns og míns himneska föður. Blessa þú byrðar mínar, blíði, sterki Jesús! Góði Jesús. Vertu hjá mér, því að kvölda tek- ur og degi hallar. Sól hnígur til vesturs, og senn kemur nóttin, en enginn fær unnið. Höfuð verð- ur lotið og hárin grána, kraftarnir þverra og þrótturinn dvínar. En þú ert hinn sami. Láttu hjartað haldast ungt, og innra manninn þroskast, þótt sá ytri hrörni. Vert þú ljósið, er lífsljósið daprast. Ég styð mig við þinn armlegg, svo áfram mér skili. Ég vil fylgja þér gegnum dauðann, því þú yfirvannst dauðann. Góði Jesús! Jesús Kristur er hinn sami í gær og í dag og um aldir. Hebr. 13,8. Aldarafmæli séra Friðriks Auk þess sem sagt var í síð- asta tölublaði frá hátíðahöldum í sambandi við aldarafmæli séra Friðriks Friðrikssonar má geta þess, að sunnudaginn 26. maí efndi séra Frank M. Halldórsson til minningarguðsþjónustu í Neskirkju. Var hún fjölsótt og í lok hennar var altarisganga, þar sem mjög margir gengu til Guðs borðs. Sunnudaginn 7. júlí var efnt til helgistundar í Garðakirkju á Álftanesi.. Var þar erindi um séra Friðrik, lesið úr ljóðum hans og sögukafli eftir hann, auk þess sem sungin voru lög og Ijóð eftir hann. Þann 28. júlí var minningar- guðsþjónusta í tilefni aldaraf- mælis hans í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Var tilhögun í flestu svipuð og að Görðum. Fjölmenni var við báðar athafnirnar. Þess má geta, að guðsþjónustan í Hallgrímskirkju var haldin á 11 ára vígsludegi kirkjunnar, en sr. Fr. Fr. orti sálm, er notaður var við þá athöfn, og flutti bæn, þá orðinn blindur. Samkomur í Selfosshíó Hópur unglinga úr K.F.U.M. og K. í Reykjavík og Hafnar- firði efndi til samkomuhalda síðari hluta júní á Selfossi. Fengu þau leigt Selfossbíó að kvöldi 19. og 20. júní. Voru þau alls um 30, sem önnuðust söng, hljóðfæraslátt og önnur atriði samkomanna. Gestur kvöldsins á fyrri samkomunni var Har- aldur Ólafsson, kristniboði, sem þá jafnframt var aðalræðumað- ur það sinni. Tveir unglinganna sögðu nokkur orð. Síðara kvöld- ið var séra Frank M. Halldórs- son gestur kvöldsins. Sú sam- koma var ágætlega sótt, en sú fyrri miður. Þeir, sem þátt tóku í samkomum þessum, voru ákaf- lega ánægðir með, hvernig tókst. Er mikill áhugi á því að efna til svipaðra samkomuhalda aftur, en óvíst, hvort farið verður á sama stað eða reynt annars staðar. Unglingahópurinn sá sjálfur um allan kostnað í sam- bandi við samkomur þessar, og voru það allmikil fjárútlát fyr- ir þau. Heimsókn frá Noregi Þegar Björn Willoch, norski stúdentapresturinn, var hér í heimsókn fyrir tveim árum, hafði hann orð á, að hann myndi reyna að koma því til leiðar, að einhverjir kæmu hingað að hausti til þess að halda sam- komur og aðstoða í starfi. Ár- angur þess er sá, að eftir ára- mót er von á Carl Fr. Wislöff, prófessor, K. Fuglestrand, biblíu- skólastjóra, og Gudmund Vin- skei, æskulýðsframkvæmda- stjóra Norska kristniboðssam- bandsins. Verður nánar frá þessu skýrt í næsta blaði. HJAllMI 13

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.